Dramaleikrit Dana.

Ég hélt nú að Kóreumenn væru verri en Danir í sviðsleik.  En svei mér þá,  hvílíkir vælukjóar og dramaleikarar frændur okkar reyndust vera.

Fáránlegt að láta Svía dæma leik sem þennan.  Enda höndluðu þeir það engan veginn.  Dómgæslan á köflum út í hött.  Síðan ekkert samræmi milli liða.   Enda hafa þeir trúlega sjálfir vitað upp á sig skömmina.  Reynt síðan að bæta það upp í restina á leiknum.

En jafntefli var fyllilega sanngjörn úrslit.   Enga hafði ég samúð með danska þjálfaranum í restina sem lét eins og kjáni.

Enn hefur íslenska liðið ekki sýnt slakan leik.  Sem er eiginlega meiri stöðugleiki en áður hefur sést. Allt getur auðvitað gerst ennþá á þessum Ólympíuleikum í Kína, en viljinn og krafturinn er frábær.

Þeir koma alltaf til baka hvernig sem staðan er og gefast ekki upp.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband