Færsluflokkur: Dægurmál
9.7.2025 | 23:47
Vantar lempni og lagni hjá meirihluta.
Þrjóska og fall á fyrsta prófi er staðreynd á Alþingi. Það sést með hverjum degi þessarar störukeppni að nokkuð vantar uppá lagni, frumkvæði og stjórnun hjá þingforseta og forsætisráðherra.
Þingforseti á hverjum tíma er í vinnu fyrir þingheim, en ekki eingöngu hjú meirihlutans. Afköstin og vilji til (eðlilegra og óhjákvæmilegra) sátta um afgreiðslu mála er nauðsynleg.
Samkvæmt lýsingum er forsætisráðherrann föst við sinn keip. Afhverju til dæmis - telst það eftirgjöf að dreifa innleiðingu hærra gjalds á útgerðir t.d. yfir 1 til 2 ár.?
Þessar upphæðir - þó gert sé mikið úr þeim - eru hálfgerð grjón í heildarsummu fjárlaga, ef út í það er farið.
Að því sögðu er ég alveg sammála þessari skattahækkun á þá sem græða mikið. Endilega finnið miklu fleiri matarholur ! Mörgum fyrirtækjum og atvinnugreinum er hreint engin vorkun að greiða meira til samfélagsins.
Kannanir um vilja þjóðarinnar ættu engum að koma á óvart. Hver vill ekki að Jón Jónsson stórgrósser borgi meira , ef ég sjálfur slepp alveg ?
Ég vorkenni hinsvegar alþingismönnum ekki baun. Þeir fengu heldur betur gott vetrarfrí. Hættið þessu væli.
![]() |
Hanna fái aðgang að jafnaðargeðsnámskeiði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 10.7.2025 kl. 05:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.6.2025 | 11:08
Lifeyrissjóðir. Komið nóg tap þar.
Fullreynt.
Hvenær skildi vörslufólk peninga almennings átta sig á þeirri augljósu staðreynd að mokstur fjár í sí - endurstofnuð flugfélög á Ísland er slæm hugmynd. ???
Sagan er að verða löng. Til dæmis er væntalegur (ef tóri) Lífeyrissjóður bænda laskaður vegna spilafíknar með annara fé og slaka fjárfestingar dómgreind í upphafi greiðslna okkar hjóna í sjóðinn fyrir mikið mörgum árum.
Hef ekki tölu á hversu mörg hafa geispað golunni með miklu peninga foki útum gluggann, en í þessu tilviki var hvorki um að ræða wow,primera eða iceland express ( fóru öll í gjaldþrot). Nýjum stjórnendum sjóðsins þótti góð hugmynd að kaupa í Arnarflugi. Þó voru fréttir um erfiðan rekstur. Ekki var það ígrundað með vitið í þverpokum því nokkrum vikum seinna varð það líka gjaldþrota.
Sem dæmi um seinheppni má geta þess að líka bauðst að kaupa í Air Atlanta sem enn er með starfsemi og ágætan rekstur í yfir 40 ár. Allan tímann hefði það nú verið betri kostur, til dæmis.
Lausbeisluð fjárfestingarstefna lífeyrissjóða (á stundum) er aldrei rædd. Vegna gífurlegra eigna er auðvelt að láta suma hluti týnast.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.5.2025 | 21:06
Að vera grímulaust á móti lýðræði.
Útskýringar hjá þeim fylkingum og persónum sem fóru halloka hjá Sósíalistaflokkunum eru grátbroslegar.
Viljinn var greinilega til þess að allt gengi smurt og liðugt hjá núverandi og ráðandi i flokknum. Hér væri aðeins formsatriði til að hespa af.
Ég veit ekkert um þessar fylkingar og hef litinn áhuga.
En. Ansans ári sem þetta lýðræði getur nú verið dyntótt.
![]() |
Hallarbylting: Gunnari Smára bolað út, Sanna ósátt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.5.2025 | 00:34
Vantar bara betra bíó.
Ástæðan er einföld að mínu mati. Það vantar betri bíómyndir. Gæðamyndir með "meira kjöt á beinunum" .
Bransinn er breyttur. Sjónvarpið og efnisveitur hafa nánast tekið yfir. Þar eru stóru leikara nöfnin og öflugir framleiðendur í dag.
Að sumu leyti er það miður og synd, Auðvitað eru sjónvörp og skerpa heima í stofu margfalt betri en í gömlu túbusjónvörpunum.
En upplifun á spennu og stórmyndum í fullum bíósal, fær ekkert toppað.
![]() |
500 milljón færri miðar seldir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2025 | 11:33
Fyrst og fremst sorglegt.
Hver bendir á annan og enginn á neinn.
Ending nýrra bygginga á Íslandi (án fáránlega mikils viðhalds) er að verða á pari við endingu torfbæja fyrr á öldum. Hættið að gera grín að þeim.
Samt er ekkert til sparað í rándýrum byggingarefnum á okkar allsnægta tímum.
Allur samanburður er auðvitað hlægilegur - en samt ekki. Maður er orðlaus yfir fúski í hönnun og frágangi í dag.
Dapurlegur vitnisburður. Þetta er líka þannig að rónarnir koma óorði á vínið. Til eru enn
sem betur fer - örfá verktakafyrirtæki með flekklausn feril i nýbyggingum.
Morgunljóst að þetta þarf ekki að vera svona. Að setja almennileg þök (með halla) á húsin í upphafi væri góð byrjun.
![]() |
Skólahúsnæðið entist aðeins í 22 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2025 | 06:51
Megas
Ég var eitt sinn bílstjóri með vinum og endað var í skemmtistaðnum Klúbbnum í Reykjavík. Fjör og gleðin teyguð þar allt til að lokað var - með glas af vodka í kók, kláravín eða Bommerlunder í hönd. ( Nafninu á þessu þýska brennivíni var yfirleitt breytt í Félagslunder í höfðið á besta félagsheimilinu).
Enn langt í að saklausari drykkur en fyrrgreindir spíra miðir væru til sölu á knæpum eða í Ríki. Bjór semsagt ófáanlegur.
Ég settist útí bíl, hinkraði eftir félögunum og kveikti á Rás 1. Viti menn hún var enn í gangi þó komið væri fram yfir miðnætti ! Var ekki Stefán Jón Hafstein byrjaður með nýjan þátt, Næturvaktin. Algjört nýnæmi.
Á þessum tíma kvölds gast þú bara hlustað á Radio Luxemburg, BBC, eða Kanann ( á Keflavík herstöð) værir þú staddur í borginni.
Stefán skellti Megas undir nálina. Mig minnir kringum tímabilið Drög að sjálfsmorði . Ég fór einmitt á þá mögnuðu stórtónleika í hátíðarsal MH.
Það var ferlega erfitt að skilja skáldið á þessum árum. Hann eiginlega hálf hrækti orðunum útúr sér í sumum lögunum.
Stefán Jón kunni ráð við því;
Þetta var bálkur mikill og mörg erindi. Að hverju þeirra loknu kippti hann upp nálinni og stöðvaði flutninginn á laginu. Las síðan sjálfur textann (Megasar) með sinni háu skýru röddu. Lét síðan nálina rólega síga niður og áfram koll af kolli. Svínvirkaði.
Auðvitað kom þá í ljós ( þegar allt fór að skiljast) að jafnvel Jónas Hallgrímsson hefði verið fullsæmdur af stöku hendingum. Flutningur söngvaskáldsins var hinsvegar villtari en flest sem var villt á þessum árum. Það átti þó eftir að snarbatna hjá honum síðar á ferlinum.
Hann Megas náði því að verða áttræður í dag. Magnaður alveg, tímalínan og sum æfiskeiðin voru nefnilega ekki alltaf heilsusamleg. Mörg kveiktu á hæfileikum hans, en ekki öll. Einn af þeim var Kristján Eldjárn Þorgeirsson fyrrum bóndi í Skógsnesi. Fullorðinn og kominn úr allt annari deild sá Stjáni fljótt margt gott í hann spunnið og heillaðist mest af skáldinu og textasmiðnum Megasi. Hans kynslóð þótti nú yfirleitt ekki mikið til koma hjá þessum krökkum . Sbr. gríntexta Flosa Ólafs. ´Það er svo geggjað að geta hneggjað.
Megas er ekki allra , en margra.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.4.2025 | 17:47
Gefa allar upplýsingar.
Likt og tíðkaðist forðum hjá "frjálsum" miðlum á Íslandi.
Gefa upp öll nöfn þeirra sem koma að vafasömum viðskiptum og framkvæmdum.
Hvar er sómakennd fjárfesta, verktaka, eftirlitsaðila (sem eru reyndar engir) , framkvæmdaðila ( sem eru eftirlitsaðilar ! Eins skrýtið og það er), hönnuða, æðstu aðila í borginni ?
Allt upp á borðið. Segið frá og teljið upp nöfn þeirra sem bera ábyrgð. Til að forða saklausu fólki ( í húsnæðisleit) frá frekari viðskiptum við alla þessa aðila.
![]() |
Lekavandamál í sex ára gömlu húsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 23.4.2025 kl. 20:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2025 | 09:41
Róa sig.
Væri nú ekki i lagi að sjá hvernig þetta gengur fyrst ?
slaka - róa sig. Sjáið fyrst hvort og hvernig þetta virkar allt saman.
Àður en byrjað er að stækka eitthvað sem ekki er farið af stað !
Vonandi að lánastofnanir - sem í sumum tilvikum eru lífeyrissjóðir okkar. Geri ríkar og
strangar kröfur um áreiðanleika og ígrundaðar fjárfestingar.
Hér má sjá aðila úr biðröðinni eftir meira fjármagni
![]() |
Sækja um stækkun á laxeldi í Eyjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.3.2025 | 11:28
Ómetanlegur fréttaflutningur.
Viðtöl sem þessi færa okkur í friðsælu umhverfi- innsýn til þess harmleiks og viðbjóðar sem hvert stríð er í augum saklausra borgara.
Frásögn Lídíu á viðhorfum frændfólks í Rússlandi til stríðsins ( innrásar) og upphafs segir sína sögu um hvernig tekst að snúa sannleikanum á hvolf í styrjöld.
Semsagt dagur eitt ( innrás Rússa í Úkraínu) er markvisst þurrkaður út um allt Rússland. Það tekst vegna þess að öll umfjöllun er stýrð frá Kreml. Síðan þegar hermenn Putíns byrja að stráfalla fer allt á sjálfstýringu. Harmur og hefnd er komin í spilið.
Fréttir án Reuters eða gamla "Tass" , líkt og þessi - milliliðalaust - skipta máli
![]() |
Þær komu eins og flugnager |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2025 | 12:02
Hinar skuldlausu eilífðarvélar.
Nákvæmlega.
Þetta er rétt hjá forstjóra Landsvirkjunar. Hinar eldri virkjanir Íslendinga, (líka RARIK) og Landsvirkjunar eru dýrmætar eignir (skuldlausar): Enginn annar á en þjóðin sjálf. Ekkert flækjustig á því sem betur fer.
Málið er einfalt. Besta "arðgreiðsla" til almennings (eigenda) er ódýrt rafmagn áfram. Verð til íbúa hefur verið með því ódýrasta sem þekkist á byggðum bólum. Almenningur á sinn rétt á að svo verði áfram.
Heimilin njóta gríðarlegra fríðinda og kjarabóta með lágu orkuverði. Gerir Ísland enn byggilegra land. Nú nær það (í vaxandi mæli ) ekki einungis til þess að knýja hrærivélina og þvottavélina - heldur einnig farartæki heimilisins.
Rétt eins og sólarrafhlöður í Arizona er hlunnindi að knýja ökutæki og heimili. Þá eru vatnsaflsvirkjanir í landi með gnægð af vatni ómetanlegir orku "demantar".
![]() |
Skuldlausar eilífðarvélar besti arfurinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)