10.1.2014 | 20:21
Nú þarf að grípa í tauma.
Þegar vetrarsólin lækkar sig í neðstu stöðu og skuggarnir lengja sig útí svart myrkur gerist það. Aðventan kemur með upplífgun í skammdegi, skraut í bæ og borg ásamt ljósum sem lífga sálaryl hjá landanum. Þá berast fréttir af brunum. Annir hjá slökkviliðum og þegar jól og áramót kæta geð guma aukast annir slökkviliðs enn , og því miður verða stundum hræðileg slys. Of oft hreinlega útfrá kertalogum, sem annaðhvort gleymast eða eru á afar slæmum stöðum.
Tryggingafélögin hljóta að hafa áhyggjur, en hvers vegna sést það hvergi í fjölmiðlum? Árangur hefur náðst með sláandi myndskeiðum og fræðslu gegn umferðarslysum.
Á aðventu og um jól/áramót þarf að halda úti stöðugri fræðslu og aðvörunum til almennings. Þetta gengur ekki.
Ég veit að sjálfsögðu ekki alltaf um eldsupptök. Þau geta að stundum verið óviðráðanleg. En fjöldi bruna í íbúðarhúsum um þetta leiti árs getur ekki verið tilviljun.
Slapp ólétt út úr brennandi íbúð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.