Færsluflokkur: Dægurmál
23.7.2021 | 10:44
Tilraun Kára raungerist.
Nú er tilraun Kára og lyfjarisanna frá því um áramót (sem aldrei varð þá) að raungerast.
Vegna þess að þátttaka almennings er hvergi meiri í bólusetningum - horfa þjóðir um allan heim til Íslands.
Hvernig reiðir bólusettum af? Hversu veikt verður fólk?
Er ekkert til sem heitir hjarðónæmi þegar veiran stökkbreytist sífellt ?
Hugsanlega hefði orðið að gagni að vita þetta örlítið fyrr.
![]() |
Ríkisstjórnin fundar um tillögur Þórólfs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.7.2021 | 11:37
Mistök.
Ætli verði ekki fleiri fréttir likar þessum áður en yfir líkur?
Í stuttu máli ; það er alltof langt frá því að allt vesenið og smit tengd covid sé úr sögunni.
Keppnir í einni íþrótt á tilteknum stað ( íþróttahöll / leikvangi) virðist sleppa. Semsagt öll saman í sömu kúlu ( búblu).
Ólympíuleikar eru svo miklu meira en það.
En gangi okkar fáu íslensku keppendum sem allra best.
![]() |
Bætist í hóp smitaðra ólympíufara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.7.2021 | 21:18
Áfengis / fíkni vandamál ?
Ég geri ekki lítið úr frásögnum þessara stúlkna. Ekki í nokkurri einustu stöðu til að meta eitt né neitt þessu tengt.
En væri varla til skaða, að láta fylgja með áskorun til Ingó að leita sér hjálpar. Þessi stúlka tekur fram að sérstaklega var þessi hegðun slæm þegar hann var í glasi.
Sumir einstaklingar verða annaðhvort snarruglaðir í vímu eða þar á milli - semsagt með alvarlegan dómgreindarbrest gagnvart siðsemi og samskiptum við annað fólk. (tek fram að slíkt ölvun /víma) afsakar ekki glæpi, þar höfum við dómstóla til að skera úr)
Án þess að vita neitt, dettur mér þetta í hug. Ingó gerði "frægðina" að ákveðnu marki upp í vinsælu lagi. Get mér til hafi hann hafi þá verið edrú, og séð sumt í nokkuð raunsæju ljósi.
En vegni honum og þessum stúlkum sem best í lífinu.
![]() |
Staðfestir frásagnir um hegðun Ingó |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.6.2021 | 10:35
Vel meint.
Vandamálið er undirbúningstími og lágmarks framkvæmdatími.
Ætli þyrfti ekki lágmark nokkra mánuði í undirbúning. Síðan á að giska 1 árs framkvæmdatíma. Höfum við þann tíma? Efast.
Því miður. En fín hugmynd, og auðvitað mA setja upp reikningsjöfnu um viðleitni til að verja margra milljarða mannvirki.
![]() |
Vill hraunbrú yfir Suðurstrandarveg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.6.2021 | 10:37
Fóður svína ?
Í USA er mjög frjálsleg löggjöf um ( svo ekki sé nú meira sagt) um efni í fóðri gripa til að flýta eldistíma og fá holdmeiri gripi. M.ö.o tíðkast að blanda lyfjum í fóður þ.á.m. hormónum. Eftirlit með slíku er ekki eins stíft og í Evrópu.
þú ert það sem þú borðar, er allavega sagt stundum.
![]() |
Kennir neyslu svínakjöts um keppnisbann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.6.2021 | 15:21
Ástæðan m.a. áhugaleysi fjölmiðla.
Fjölmiðlar og þá sérstaklega RÚV flytja engar fréttir af sjávarútvegi nema neikvæðar. Er nema vona að vitneskjan,fræðsla og áhugi sé lítill hjá almennningi.
Dæmi ; kom nokkur frétt um ný glæsileg skip Samherja fyrir stuttu ? Oh nei, gleymdu því.
Aflafréttir eru liðin tíð, Brjóstastækkun eða eitthvað álíka hjá Kardashian systrum þykir meira áríðandi efni til að miðla.
![]() |
Of margir tengi ekki við sjávarútveg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.6.2021 | 11:47
Er ekki búið að sanna á sig 55 árum?
Það er látið eins og einkarekstur á læknastofum í heilbrigðiskerfi sé að hefjast.
Er fagfólk og þjónusta bara ekki búin að sanna sig á bráðum sex áratugum! Væll og andstaða ráðherrans í garð einarekinnar þjónustu er illa i takti við tugþúsundir almennings sem njóta góðs af.
Kostnaðar - aðhald er hins vegar annar hlutur og að sjálfsögðu á enginn ( á neinum tíma) að geta skrifa blinda óþarfa reikninga á ríkið - umfram þarfir.
Þrátt fyrir allt sparast nefnilega kostnaður ríkisins á móti.
![]() |
Domus Medica lokað um áramót |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.5.2021 | 11:09
Morgun djammarar á öðru en áfengi.
Það sagði mér leigubílstjóri í miðborginni eitt sinn, að fólk sem er á skemmtistöðum og börum til kl 5 - 6 að morgni og síðan á leið í partý - væri komið á annað og verra skynjunarefni en áfengi.
Það er hægt að hafa alltsaman sprellandi hresst og skemmtilegt þó skemmtistaðir séu opnir til klukkan 3 - 3.30 Þetta maraþon djamm er nokkuð séríslenskt hvað varðar opnunartíma veitingahúsa.
![]() |
„Viljum við í alvörunni fara aftur í sama far?“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.5.2021 | 23:04
Hægt að tengja við Evru.
Ef að Steindóri Valdimarssyni og fleirum í Viðreisn með krónískt "evrublæti" liði betur - væri hægt að tengja krónuna lóðbeint við evruna. Seðlabankinn hefur tækin til þess og varasjóði til að stilla gengið.
Það bara hentar fráleitt alltaf íslenskum aðstæðum. Þess vegna er það ekki gert. Það er snúið að þvinga hitamæla í einhverja "óska" - áttir.
![]() |
Segir íslensku krónuna hafa verið „blessun“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 5.5.2021 kl. 22:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.4.2021 | 00:30
Reikna út mögulega atburðarás.
Blaðamenn síspyrja "hversu lengi gýs? " En það veit enginn fyrir víst svo þar er aðeins gisk.
Sumt er hinsvegar hægt að reikna. T.d. ef hraunið rennur til suðurs. Ef flæðið helst; Hvenær yrði Suðurstrandarvegurinn rofinn? Hvað þýðir það ?
Hvað þýðir það fyrir öryggi á svæðinu. ?
![]() |
Hraunið við Fagradalsfjall margfalt minna en Holuhraun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)