Færsluflokkur: Dægurmál
8.2.2022 | 11:16
Vonandi lexía.
Þetta er illskiljanlegt. Af hverju var þessum upplýsingum ekki komið samtundis til lögreglu? Af hverju var þessum upplýsingum ekki komið samstundis á björgunarstjórnstöð?
Ætlaði einhver að spila sóló ? Flugmenn að leita sjálfir ? Eða vinir?
Ég veit engin svör við þessum spurningum. Málið er að þarna skipta;
1. sekúndur, 2. mínútur, 3. klukkustundir, 4.dagur, 5. sólarhringar, öllu máli.
Tek fram að að nr. 1 og 2 á vart við hér. Slíkur er fimbulkuldi Þingvallavatns, að björgunartími er örstuttur. En allar vísbendingar á fyrstu stigum er algjört "gull" við svona hrikalegar aðstæður (engin neyðarmerki frá flugvél) .
Svona upplýsingum má aldrei undir neinum kringumstæðum halda fyrir sig, eða sinn hóp.
Að þessu sögðu skal haldið til haga að björgunarsveitir stóðu að öllu
öðru leyti sig frábærlega, eins og áður í erfiðum aðstæðum. Þetta skýrist vonandi, við rannsókn, eða í upplýsingum frá stjórnendum leitar næstu daga. Slæmt að þetta hafi þurft inn í reynslubankann.
PS. magnað að sjá íslenska hönnun og tækni í fjarstýrðum kafbát - sem líkur þessari leit í hyldjúpu vatninu.
VIÐBÓT; Lögregla og björgunarsveitir vísa nú þessum upplýsingum Fréttablaðsins á bug og segja ekki réttar. Er það vel, ef svo reynist.
Mikilvæg gögn hafi borist seint til lögreglu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.1.2022 | 21:33
Hættulegasti andstæðingurinn kominn fram.
það var þá kófið sem fór með það. Illviðráðanlegt að stöðva þennan andstæðing þegar hann mætir. Eins og þetta leit allt hrikalega vel út.
Við áttum góðan séns í Dani með okkar öflugustu menn, en þetta riðlar nú ýmsu.
Grímuskylda inni í 22.0000 manna höllinni var nú bara góður brandari í gærkvöldi. Flestir með teygjuna um hálsinn reyndar, en fáir með grímuna fyrir vitum. Í hitanum, svitanum og æpandi stemningu.
Eins var lýsing Guðmundar þjálfara um vals almennra hótelgesta um allt meðal leikmanna, ekki traustvekjandi sem sóttvarnir fyrir leikmenn.
Fer eins fyrir landsliðinu og Daða í júróvisjón ? ( 2 ár í röð) Vonandi ekki.
Vallarþulurinn hælir Sigvalda á hvert reipi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.1.2022 | 13:08
Í beinu sambandi við kófið.
Voða er þetta "drastískt" allt saman. Á leið útaf sporinu já. Er það ekki fullmikið sagt? Gegnum allt þessi tvö ár, höfum við nokkrum sinnum séð skæru ljósin við enda gangannna. Okkar hefðbundna óhefta líf innan seilingar. En orðið að éta margt aftur upp. Þreytti frasinn "þetta er ekki búið" - margupprisinn.
Sé veiran hætt að stökkbreytast, eða hjarðónæmið byrjað að virka hefur Ragnar Freyr læknir rétt fyrir sér. Enginn veit það hinsvegar fyrir víst. En sé þessi bardagi í heildarstríðinu gegn kóvid hinsvegar að hjaðna - er það vissulega fagnaðarefni.
Frábið mér hinsvegar besserviss eftirá eða "ég sagði það"( sem mun eflaust heyrast) . Heimsfaraldur þessi er /var í hápunkti sínum alvarlegri en svo.
Erum á leið út af sporinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.12.2021 | 12:28
Vakur á skeiði.
Jón Jónsson yngri var bóndi á vestri- Loftsstöðum í Flóa. Gerði einnig út áraskip á þessari aldagömlu verstöð. Síðastur sinna forfeðra sem voru alnafnar hans í marga ættliði. Vélaöldin breytti mörgu í sjósókn sem sllir þekkja. Einnig var hann organisti og stjórnaði kirkjukór. Gaulverjabæjarkirkju. Sögur af Nonna voru margar, og hann dró nú ekki sjálfur úr, í sínum sögu - frásögnum - og atvika lýsingum.
Vestri Loftsstaðir voru menningarheimili á árum áður. Ragnar í Smára lýsir m.a.veru sinni þar sem ungur drengur. Upplifði flutning á klassísku tónlistarverki á hefðbundin hljöðfæri líkt og í stórborgum Evrópu. Enda bjuggu þarna áður án efa, það fólk sem var í mestum efnum í Gaulverjabæjarhreppi. Sjórinn (verstöðin) gaf vel.
Dagur Brynjólfsson bóndi í Gaulverjabæ (Nonna saga) fylgdi vel eftir að halda í þau hlunnindi sem fylgdu kirkjujörðinni á öldum áður. Sennilega síðasti ábúandinn sem gerði það. Eitt af því var hluti í reka á Loftsstaðafjöru. Eitt sinn kom Dagur á sjávar - kambinn og hitti Jón. Sáust þá för í sandinum. "Hér eru för eftir hest. Síðan líkt og eitthvað hafi verið dregið eftir fjörunni" Gaf í skyn að dreginn hefði verið reki, eða annað álíka. Örlítið fát kom á Nonna, en svaraði síðan ;
"Nei, ég var hér á mínum besta hesti. Hann lá svo hratt á skeiðinu að hann hreinlega dró afturlappirnar ! "
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.10.2021 | 14:10
Munaði lika um Hafnarfjörð.
Vegna " línudans" í nýju hverfi Hafnafjarðarbæjar mátti lítið sem ekkert byggja þar í tæp tvö ár. Skipulagsstofnun ásamt fleirum brá þar fyrir fæti.
Munar um minna í stórum bæ. Afleiðingar án efa (að hluta) ástæða þess að fólk flykkist austur ( Selfoss, Hveragerði) og vestur fyrir höfuðborgar - mörkin.
Meðvirkni með bönkunum sem spáðu rangt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.10.2021 | 21:04
Sofandi lífeyrissjóðir.
Af hverju stökkva íslenskir lífeyrissjóðir ekki á svona tækifæri?
Er þetta of öruggt ?
Þá er ég að meina stærri hlut. Ráðandi hlut í Mílu. Nóg til af peningum frá okkur pöpulnum - sem eru ætlaðir í ávöxtun. Tekjuinnstreymi þessa fyrirtækis traust. Inernetið er ekkert að klárast og síminn verður notaður áfram. Það er nokkuð ljóst.
Svona fjárfesting er ekki skyndigróði. Þetta er langtíma. En er ávöxtun svona sjóða ekki nákvæmlega það ?
Þess í stað eru skrýtnu ( og misheppnuðu) " ævintýrin" útum allt. Í hvert skipti sem ekið er héðan til Reykjavíkur sést t.d Reiðhöll ein og íbúðahverfi í Ölfusi. Þar hafa lukkuriddarar lífeyrissjóðanna farið ( ekki 1x heldur oftar) rass yfir haus. Í gölnum fjárfestingum. Etv. ekki stór töp í heildarsamhengi, en safnast er saman kemur.
Þarf að gæta þess að allir séu á sömu blaðsíðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.9.2021 | 10:25
Fræðileg útlisting á óskhyggju Viðreisnar.
Þessi maður hefur prýðilegt vit á þessum hlutum.
Múlbinding við evru tekur í burtu sveigjanleika. Athyglisvert þetta með að stýrivextir þyrftu jafnvel að vera enn hærri og launþegar að sitja á strák sínum i hærri kaupkröfum.
Staða síðan um hrun er i stuttu máli þessi;
1. Efnahagsstjórn landsins er betri.
2. Seðlabanki varð að girða sig í brók. Gjaldeyrisinnstreymi var skynsamlega sett í varasjóð. En í sjálfu sér eftirá óskhyggja að ekki kæmi fjárgat ( eða far) eftir topp 5 -10 stærsta gjaldþrot heimssögunnar.
3. Séu stjórnvöld með kollinn sæmilega á herðunum er eigin gjaldmiðill áfram besta tækið til góðra lifskjara og atvinnu. Ástæðan er einföld. Auðlindir á landi, sjó og í menntuðu upplýstu fólki.
Ómögulegt að halda fastgengi við evru | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.8.2021 | 00:18
Aftur blómaskeið Bjarkar vonandi.
Allar lýsingar á frumleika Bjarkar Guðmundsdóttur sem söngkonu, tónsmiðs, hljóðheimssskapara og flytjanda á fyrri hluta ferils síns, sannarlega sannleikanum samkvæmt. Ekki má heldur gleyma hárgreiðslu hennar :-) . Enn sjást í tísku hnútarnir tveir í hári, bylgja sem hún kom af stað fyrir löngu.
En. Skilnaðir hennar urðu alltof mikið stóra málið í hennar tónlistarlífi. Endalausar pælingar kringum þau sárindi öll lituðu allt of mikið hennar list - að mínu persónulega áliti.
Þetta hefur enginn viljað segja upphátt, svo hátt er hún á stallinum.
Vonandi kemur hún sterk inn. Þessi kona er snillingur. Verður ekki frá henni tekið.
Björk á lista yfir áhrifamesta tónlistarfólkið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.7.2021 | 10:44
Tilraun Kára raungerist.
Nú er tilraun Kára og lyfjarisanna frá því um áramót (sem aldrei varð þá) að raungerast.
Vegna þess að þátttaka almennings er hvergi meiri í bólusetningum - horfa þjóðir um allan heim til Íslands.
Hvernig reiðir bólusettum af? Hversu veikt verður fólk?
Er ekkert til sem heitir hjarðónæmi þegar veiran stökkbreytist sífellt ?
Hugsanlega hefði orðið að gagni að vita þetta örlítið fyrr.
Ríkisstjórnin fundar um tillögur Þórólfs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.7.2021 | 11:37
Mistök.
Ætli verði ekki fleiri fréttir likar þessum áður en yfir líkur?
Í stuttu máli ; það er alltof langt frá því að allt vesenið og smit tengd covid sé úr sögunni.
Keppnir í einni íþrótt á tilteknum stað ( íþróttahöll / leikvangi) virðist sleppa. Semsagt öll saman í sömu kúlu ( búblu).
Ólympíuleikar eru svo miklu meira en það.
En gangi okkar fáu íslensku keppendum sem allra best.
Bætist í hóp smitaðra ólympíufara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)