29.4.2019 | 14:17
Fróðlegt að fylgjast með.
Þegar komin verða nokkur svæði á landinu með vindmyllugörðum eykst þrýstingur að koma orkunni í hærra verð.
Ekki finnst mér fegurð fylgja vindmyllum í byggð. Hef heyrt orðið umhverfisáhrif af minna tilefni. En kannski er ég í æpandi minnihlutahóp. Allt ætlar um koll að keyra ef minnst er á háspennulínur, bæði í byggð og hálendi. Hver er munurinn? Ég gæti vel sæst á vindmyllur a hálendinu hinsvegar. Þar eiga þær heima.
Þær eru vart deilumál enn sem komið er. Það er orkupakki 3 hinsvegar.
Umræðan um orkupakkann hefur verið ágæt og þörf. Jafnvel þessa dagana í " auga stormsins". Allskyns hlutum verið velt upp með fínum rökum. Á báða vegu.
Ég er á móti, en ég frábið allar dylgjur ótrúlega margra, um annarlegar hvatir.
Svo kvartar dylgju og stimpils- fólkið um slæma umræðuhefð á Íslandi !
Suður afríski "apartheid" sjónvarpsþátturinn Silfur hjá RÚV er svo sér kapituli útaf fyrir sig.
Alltaf ein hlið, ein skoðun ,rædd í drep, skoðanabræður og systur æsa hvort annað i einu "sampeppi" , studd af stjórnandanum sem blygðunarlaust gefur í skyn að vera sömu skoðunar og handhafar eins sannleika.
Aldrei þor né vilji að hleypa inn öndverðri skoðun 50 / 50.
Þegar fagmennska ríkti hafði ég gaman af svona þáttum. En ekki lengur. Helst að Egill hitti á viðmælendur í áhugavert einkaspjall sem þora að standa utan meginstraums.
![]() |
Tvö vindorkuver í matsferli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.