23.10.2011 | 12:06
Verðhækkun íbúðarhúnæðis.
Verðhækkun íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu er illskiljanleg. Fréttir í liðinni viku gáfu þessa staðreynd til kynna.
Líkt og margt annað hérlendis finnst mér það ekki í takti við raunveruleikann. Allir vita hve gnótt húsnæðis var byggt í bólunni miklu. Langt umfram þarfir næstu árin. Því ætti húsnæði að lækka við allar eðlilegar aðstæður. Sú lækkun myndi síðan veita kaupendum síns fyrsta húsnæðis, og fleirum, tækifæri aftur á ný.
Ástæður þessa er spil og plott hins nýja bankakerfis. Nýju bankarnir hanga á eignum sínum. (íbúðar og iðnaðarhúsnæði) . Setja það ekki út á markað nema í hæfilegum skömmtum. Allt til að fegra eigið bókhald , vernda og bæta stöðu sína í reikningum.
Slíkt hélt ég að allir hefðu fengið nóg af. Það verður að ganga útfrá hlutunum eins og þeir eru. Mæla rétt.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.