Helgi gengisfellir eigin fagmennsku.

Hefði Helgi bara sleppt því að böggast sjálfur persónulega stöðugt á opnum spjallþráðum í garð Samherja, hefði hann sloppið við áminningu. 

Það að hann geti ekki á sér setið, opinberar beinlínis óvild "fagmannsins" í garð fyrirtækisins. 

Viðhlægjendur hans fagna að sjálfsögðu hverju neikvæðu tísti, ekkert nýtt þar.  Það hinsvegar espir hann bara enn frekar upp. 

Þráhyggjuröskunin nær orðið býsna mörg ár aftur í tímann.  Ekkert hefur enn komið útúr rannsóknum bæði Seðlabanka og dómsvalda (?) 

Ég hef ekki hugmynd um hvort Samherjamenn séu saklausir englabossar, en enginn hefur samt enn sannfært mig um lögbrot. 

Sjálfur er ég þeirrar skoðunar að stærstu fyrirtækin í íslenskum sjávarútvegi fái að verða of stór.  Leyfileg  kvótaeign sem hlutdeild í smáu hagkerfi sé komin uppfyrir skynsemismörk.


mbl.is Helgi Seljan fjalli ekki meira um Samherja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Malbika kannski. ?

Ótrúleg lýsing satt best að segja.  Mikið að ekki var kvartað yfir að ekki náðist að malbika leiðina fyrir helgina. 

1. Þetta er ekki túrista staður ( enn, eða fyrr en nú).

2. Halló, gosið byrjaði á föstudag !

3. Enginn vissi nákvæmlega hvar eða hvort myndi gjósa. 


mbl.is „Fólk var mjög reitt yfir þessu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forvitnin skiljanleg, óvarkárni galin.

Qimage.    Von að svona sjónarspil trekki að.   Þetta er sýn sem enginn gleymir á sinni ævi.  Fór sjálfur á svipaðar slóðir í Heklugosi árið 1970, þá 9 ára gamall.  Nokkur nálægð við áframveltandi úfið glóandi hraun.   Vel fast í minni síðan þá.

En óvarkárni og ó- raunsæi forvitinna í þessum aðstæðum er stórhættuleg.  Galið að hætta sér of nálægt gígnum / uppstreyminu þar sem getur hrunið úr, eða opnast ný  upprás úr neðra.

Forvitnilegt hvort næst að fylla þennan Geldingadal af hrauni.  Frændi minn fjáreigandi í Grindavík, sagði í gamansömum tón að illt væri að hraun rynni yfir einn einn af fáum grasi grónum beitarhögum á þessu svæði.

Hef sundum horft horft of mikið í kringum mig ( uppá umferðaröryggi)  þegar ekin eru Þrengslin eða yfir Hellisheiði.   Jarðfræðinám í menntaskóla opnaði  örlitið augu mín fyrir jarð og hraunmyndun okkar lands.    

Fyrir ofan Litlu - Kaffistofuna er Svínahraunsbruni en angi þess nær suður í Þrengslin.  Er þú horfir   á fjöllin sést hve þau eru nokkur sérkennilega "lág".    Vel er hægt að sjá að mörg þeirra hafi verið mun hærri, en úfið þykkt hraunið fyllt hressilega uppí dali og víðfeðm svæði.  Rétt eins og þjóðin verður nú vitni að í smágosinu við Geldingadal á Reykjanesi.


mbl.is Snjóbolti sem yrði fljótt stjórnlaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært starf.

Fólk sem á þakkir skilið öll sem eitt.  Tökin á þessu veirufári öllu saman snúa að fleirum en þríeykinu, þó góð séu.    Ekki þar fyrir að Víðir og Þórólfur benda stöðugt á það sjálfir.

Rakningateymið vann magnað starf. Því kann samt ekki að vera lokið - enn geysa sinueldar í nágrannalöndum. En vonandi.


mbl.is Setti líf fólks á hvolf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband