5.3.2009 | 22:00
Skapofsi og kjaftfærni.
Þetta með að "detta ekki úr háum söðli" má til sanns vegar færa hjá Sturla. Það vita auðvitað allir hvernig Steingrímur sjálfur hefur látið í sölum Alþingis gegnum tíðina.
Svo má deila um skilgreininguna á ofbeldi. Það getur líka verið andlegt ef því er að skipta. Hann danglaði líka í öxl Haarde fyrir ekki svo löngu ef einhver vill það líkamlegt.
"Gunga og drusla" og svo framvegis, sem örlítið dæmi um orðfæri og takmarkaða háttvísi þessa hneykslaða ráðherra .
Ekki þar fyrir fæstum er illa við Steingrím. Hann er kraftmikill pólítíkus með sinn sérstaka stíl og allt í lagi með það. En samt greinilega svo hörundsár og streituhár í öllum sínum embættum að hann þarf aðeins að draga djúpt andann.
![]() |
Deildu hart í þingsal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.