Lifeyrissjóðir. Komið nóg tap þar.

Fullreynt.

Hvenær skildi vörslufólk peninga almennings átta sig á þeirri augljósu staðreynd að mokstur fjár í sí - endurstofnuð flugfélög á Ísland er slæm hugmynd. ???

Sagan er að verða löng. Til dæmis er væntalegur (ef tóri) Lífeyrissjóður bænda laskaður vegna “ spilafíknar” með annara fé og slaka fjárfestingar dómgreind í upphafi greiðslna okkar hjóna í sjóðinn fyrir mikið mörgum árum.

Hef ekki tölu á hversu mörg hafa geispað golunni með miklu peninga foki útum gluggann, en í þessu tilviki var hvorki um að ræða wow,primera eða iceland express ( fóru öll í gjaldþrot). Nýjum stjórnendum sjóðsins þótti góð hugmynd að kaupa í Arnarflugi. Þó voru fréttir um erfiðan rekstur. Ekki var það ígrundað með vitið í þverpokum því nokkrum vikum seinna varð það líka gjaldþrota.

Sem dæmi um seinheppni má geta þess að líka bauðst að kaupa í Air Atlanta sem enn er með starfsemi og ágætan rekstur í yfir 40 ár. Allan tímann hefði það nú verið betri kostur, til dæmis.

Lausbeisluð fjárfestingarstefna lífeyrissjóða (á stundum) er aldrei rædd. Vegna gífurlegra eigna er auðvelt að láta suma hluti “týnast”.


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Það er söguleg staðreynd að hingað til hefur ekkert íslenskt millilandaflugfélag náð að lifa af til lengri tíma nema "ríkisflugfélagið".

Guðmundur Ásgeirsson, 14.6.2025 kl. 02:10

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sex og sex?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband