27.10.2021 | 21:04
Sofandi lífeyrissjóðir.
Af hverju stökkva íslenskir lífeyrissjóðir ekki á svona tækifæri?
Er þetta of öruggt ?
Þá er ég að meina stærri hlut. Ráðandi hlut í Mílu. Nóg til af peningum frá okkur pöpulnum - sem eru ætlaðir í ávöxtun. Tekjuinnstreymi þessa fyrirtækis traust. Inernetið er ekkert að klárast og síminn verður notaður áfram. Það er nokkuð ljóst.
Svona fjárfesting er ekki skyndigróði. Þetta er langtíma. En er ávöxtun svona sjóða ekki nákvæmlega það ?
Þess í stað eru skrýtnu ( og misheppnuðu) " ævintýrin" útum allt. Í hvert skipti sem ekið er héðan til Reykjavíkur sést t.d Reiðhöll ein og íbúðahverfi í Ölfusi. Þar hafa lukkuriddarar lífeyrissjóðanna farið ( ekki 1x heldur oftar) rass yfir haus. Í gölnum fjárfestingum. Etv. ekki stór töp í heildarsamhengi, en safnast er saman kemur.
Þarf að gæta þess að allir séu á sömu blaðsíðu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæll Valdimar æfinlega; sem og aðrir gestir, þínir !
''Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda
Bjarni Þór Óskarsson <bjarni@motus.is>
Sæll Óskar Helgi
Að gefnu tilefni upplýsist að hjá Lögheimtunni eru engar kröfur til innheimtu á þig frá Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda. Einnig skal upplýst að hjá Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda eru engar virkar kröfur á þig heldur.
Kveðja | Regards,
Bjarni Þór Óskarsson hrl.
Laugavegi 99 | 101 Reykjavík
Sími 440 7900 | Fax 440 7901
bjarni@pacta.is | www.pacta.is
From: Óskar Helgi Helgason [mailto:oskarhelgi1958@gmail.com]
Sent: 2. febrúar 2017 19:27
To: postur@umb.althingi.is; sigur@sl.is; Bjarni Þór Óskarsson <bjarni@motus.is>; Ylfa Flosadóttir <ylfa@motus.is>; gylfi@asi.is; hb@sa.is; hbern@althingi.is; sjf@saksoknari.is; hmg@saksoknari.is; rsk@rsk.is; annabirna@syslumenn.is; FME Alma Jónsdóttir <alma@fme.is>; olafur@ns.is
Subject: Svar; við bréfi Tryggva Gunnarssonar Umboðsmanns til mín, dags. 31. Jan.s.l.
Komið þið sæl; á ný !
Tryggvi Gunnarsson; Umboðsmaður alþingis.
Þakka þér fyrir; einarðlegt og skriflegt svar þitt (með bréfi) til mín, með áðunefndri dagsetningu.
Þú vísar; skilmerkilega, til þess möguleika míns, að ég sendi stjórn Söfnunarsjóðs lífeyrisrettinda sjálfri, mínar umkvartanir / sem hófust með þessum bréfaskriftum mínum, þann 19. Janúar, s.l.
Fyrst er til að taka; að þau Guðmundur Árnason, gefa ekki upp sín netföng, á síðu Söfnunarsjóðsins / og í öðru lagi sé ég ekki tilgang í, að reyna að leiða þann mannskap (stjórn Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda) í nokkurn sannleika, um réttmæti minna umkvartana, þar sem þau eru saman súrruð við ranginda- og ræningja bæli Söfnunarsjóðsins / í boði þess alþingis, sem má nú ekki einu sinni vera að því, að sinna brýnum þörfum landsmanna allra, sbr. ástand Útgerðar og fiskvinnzlu / Heilbrigðis- og Samgöngumála landsins, svo: fátt eitt sé talið.
Þar; sem starfshættir alþingis, ef ''starfshætti'' skyldi kalla, eru með því sniði, sem dagleg fígúru- og slæmzkuverk sýna okkur / hvern einasta dag ársins geri ég alls ekki ráð fyrir, að viðtökur stjórnar Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda við minni hófstilltu beiðni, yrði með nokkuð geðfelldari brag, Tryggvi.
Sjáum; doða og sleifarlag Sigurbjörns Sigurbjörnssonar, sem og rukkara hans, Bjarna Þórs Óskarssonar hjá Lögheimtunni, t.d., við mínum áskorunum, síðast í gær (1. Febrúar 2017), bauð ég þeim félögum upp á, að skipta á milli sín persónulega, mínum iðgjöldum til þessarar skelfilegu og ömurlegu sjóðs nefnu, áranna 2004 - 2008, hefi ég engin viðbrögð fengið frá þeim kumpánum (þegar þetta er ritað), þrátt fyrir undirliggjandi ágirnd þeirra beggja, til minna fjármuna.
Tryggvi !
Þá; hafa engin viðbrögð komið, frá þeim Helga Bernódussyni, skrifst. stjóra alþingis / fremur en Gylfa Arnbjörnssyni hjá ASÍ og Halldóri Benjamín Þorbergssyni hjá SA, þessir þrír síðastnefndu vita upp á sig skömm alþingis, sem og ASÍ og SA, en, ........... eru ekki menn til, að standa reikningsskil misgjörða stofnana og samtaka sinna, gagnvart hagsmunum almennings, í landinu, á nokkurn hátt.
Að óbreyttu; sýnist mér því, sem ég sé tilneyddur til, að fara með málið fyrir þá fjölmiðla, sem enn má kalla nothæfa í landinu, á næstunni.
Met; við ykkur Ölmu Jónsdóttur (lögfr. hjá FME), að sýna þó þann manndóm og þor - sem drengskap, að svara mínum umkvörtunum, þá að baki ykkar tilsvara liggi laga þvæla; hins gjörónýta alþingis, frá hinum ýmsu ára bilum.
Tryggvi !
Það er; grafalvarlegt mál, hversu þróun Lífeyrissjóða kerfis landins hefir leitt þá / einfaldlega; til sukks og seyru alls lags, innanlandsins / sem og utan þess.
Viðurstyggilegt Smákónga veldi; sem nærist á fjármunum vinnandi fólks, til þess að veltazt um í ofurlaunum sinna stjórna sjálfra / sem og stjórnenda, dægrin löng, með tilheyrandi lúxus og bíllífis hátterni.
Spyrja má Tryggvi; hvort fara þurfi: jafnvel, með mála leiðréttingar landsmanna, suður til Afríku eða Ameríku álfanna þriggja / eða austur til Asíu jafnvel, svo til skikkanlegrar niðurstöðu mætti leiða ???
Alþingi; sem 63 manna liðssveit þess, er alla vegana ónýtt, til lagfæringa þeirra, sem knýjandi eru, mér:: sem öðrum landsmönnum, sem hlunnfarin höfum verið, um margra ára / sem og áratuga skeið !!!
Með sömu kveðjum / sem áður //
Óskar Helgi Helgason
Borgarheiði 1 h,
810 Hveragerði / Efra- Ölfusi, Árnessýslu
Gsm: 618 5748''
Svona aðeins; til þess að sýna þjer Valdimar - sem og öðrum lesendum þínum, hvers lags pappírstígra er við að etja, í Lífeyrissjóða bákninu.
Væri nú ekki nær Valdimar minn; að hinir eiginlegu eigendur fjárins (sem greiða möglunarlaust í þessar hítir Lífeyrissjóðanna, hefðu SJÁLFIR með ráðstafanir þess að gera, í stað þess að láta kontóra þessa lið valza með peningana, frá degi til dadags ?
Með beztu kveðjum; sem endranær /
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.10.2021 kl. 23:22
.... örlítil viðbót; til skýringar fyrri færzlu :
''Þann 19. janúar 2017 kl. 23:35 skrifaði Óskar Helgi Helgason <oskarhelgi1958@gmail.com>:
- - - - - - - - - Áframsent skeyti - - - - - - - - - -
Frá: Óskar Helgi Helgason <oskarhelgi1958@gmail.com>
Dagsetning: 19. janúar 2017 kl. 15:29
Titill: Mál: RSK2009-1 / Lögheimtan 5410-001279
Til: sigur@sl.is, bjarni@pacta.is, ylfa@motus.is, gylfi@asi.is, hb@sa.is, postur@umb.althingi.is, hbern@althingi.is, sjf@saksoknari.is, hmg@saksoknari.is, fme@fme.is, rsk@rsk.is, annabirna@syslumenn.is
Til allra: hlutaðeigandi !
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 27.10.2021 kl. 23:43
Nú misskilur þú eitthvað P.Valdimar. Það voru lífeyrissjóðirnir sem voru að selja Mílu. Þeir áttu meirihluta í Mílu, eins og reyndar flestum stærri fyrirtækjum hér á landi, hvort heldur er í einkageiranum eða í þeim geira sem eitt sinn kallaðist grunnþjónusta en hefur þróast frá því, fyrst yfir í ohf og síðan hf fyrirtæki.
Reyndar voru þekkt viðskipti fyrir hrun, sem byggðust á að menn seldu sjálfum sér, til að auka verðmætin, svona á pappír. En vitum jú hvernig að endaði.
Gunnar Heiðarsson, 28.10.2021 kl. 13:42
Nú, þú segir nokkuð. Á heimasíðu Símans er reyndar fullyrt að kaupandinn Ardian vilji bjóða lífeyrissjóðum með í kaupin. Allt að 20 %
Það er varla mjög rausnarlegt. En eflaust eftir því hvernig á það er litið. Getur allavega ekki talist ráðandi hlutur.
En hafir þú rétt fyrir þér Gunnar - hef ég hvergi séð frá Lífeyrissjóðunum hvað var vandamálið og ástæðan fyrir sölunni.
P.Valdimar Guðjónsson, 28.10.2021 kl. 21:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.