20.11.2012 | 23:20
Fróðleg samtímalýsing.
Já, þetta er svona nokkurn veginn eins og við óbreyttur pöpullinn höfum haft á tilfinningunni. Og séð með eigin augum.
Glöggt er gests augað og Birna sér greinilega það sem við hin höldum. Einhvern veginn hef ég á tilfinningunni að þeir láti kjánalegast sem samkvæmt skoðanakönnum eru á leið út eða eru hræddir um sæti sín. Kann þó að vera misskilningur. Hinir sömu virka á mig sem önugir og oft ranhvolfandi í sér augunum ef einhver er svo " vitlaus " að hafa aðrar skoðanir en þeir/ þau.
Ekki bæta frammíköll og truflandi tuð úr þingsal sem reyndar tveir núverandi þingmenn eiga hvað mesta sök á að upphefja sem skringilega hefð. Nefnilega Steingrímur J. og Ömmi, þá í stjórnarandstöðu.
Það er annað andrúm inná vellinum. Líka þegar kemur að Alþingi. Sennilega fangar áhorfendur uppi á bekkjunum eða í sínum sjónvarpstækjum þetta aldrei eins og þéttsetnir þingmenn í litlum sal.
Velti fyrir mér hvenær viðsnúningur hefst. Hvenær ætla þingmenn að vinna til baka eitthvað af trausti almennings? Með svona umræðuhefð helst það áfram í 10 - 12%
Sakar þingmenn um skrílslæti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Vandamál Alþingis er ekki löngu steinrunnin "umræðuhefð" heldur skelfileg framkvæmdahefð. Lagasetningar þjóðþingsins eru afleitar, eftirlitshlutverkið brandari og grímulaus þjónkun við hagsmunaaðila rótgróin.
Ég hef fulla samúð með þingmönnum sem blöskrar framganga Vigdísar Hauksdóttur sem er holdgervingur tækifærismennskunar á þingi.
Hilmar Hafsteinsson (IP-tala skráð) 20.11.2012 kl. 23:55
Enn og aftur ég ber litla sem einga virðingu fyrir því sem þarn er inni! Lái mér hver sem vill.
Sigurður Haraldsson, 21.11.2012 kl. 05:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.