Merkilegir snúningar.

Hvernig hlutirnir snúast á stjórnarheimilinu er farsakennt.   

Samfylkingar þingmenn og þeir sem vilja inn í ESB á 9.1 sek helst, sáu fram á góða daga.  Án Jóns Bjarnasonar  í sjávarútvegi, landbúnaði og ESB...i.

Þeim verður ekki að ósk sinni í bili.      Ástæðan er skýr stuðningur Guðfríðar Lilju og Ögmundar Jónasonar við Jón Bjarna  í fréttum dagsins.    Í þingsal snupraði Guðfríður formann sinn Steingrím svo undan sveið, án efa.

Þetta umsókarferli er farið að trufla og taugaskekja allt samfélagið.   Það ætti að setja á frost nú, líkt og fjölmargir ESB sinnar eru einnig farnir að telja heillavænlegt.

En i enda dagsins snýst þetta líka um að auka hagvöxt og fjárfestingar .  Innlendar og erlendar.  Þó það hljómi frá gagnrýnisröddum sem klisja er það eigi að síðu staðreynd.     Þar miðar hægt.

 Án nýrra fjárfestinga aukast ekki tekjur ríkissjóðs eins og nú þarf sem aldrei fyrr. 

Ég er ekki svo grænn að segja neitt af núverandi ástandi auðvelt.  Svo er ekki fyrir neinn,  hvorki flokka né stjórnmálamenn.         En sá vandræðagangur. Innri klofningur ríkisstjórnar, ólga og misvísandi skilaboð þeirra sem ráða för gerir þjóðina algjörlega steinhissa og furðu lostna  í enda hvers dags.


mbl.is „Þjóðin veit fyrir hvað ég stend“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband