23.1.2020 | 07:03
Guðmundur er vísindamaður.
Einn póstur eftirá séð, var hve mikil dýrmæt orka var sett í að vinna Rússa stórt. Það var ein af ástæðum dýrkeypts, arfaslaks síðari hálfleiks á móti Ungverjum.
Með ákveðna breidd, sem er alltaf mismikil milli liða - og þennan gífurlega leikjafjölda - er "orkustjórnun" allt í einu orðin einn af lykilþáttum hjá þjálfarateymi í svona móti.
Þetta er vandasamt verk, hlýtur að vera. Hraði í nútimahandbolta er gífurlegur og bil milli liða fljótt að breytast.
Sigur á Russlandi var nóg. Það var ljóst með nokkru öryggi, all tímanlega að sigur var ú hendi. Á svona tímapunktum er gríðarlega dýrmætt að hvíla aðeins lykilmenn. Hvað þá fertuga lykilmenn.
Leikja- álag á svona stórmóti er allt að því ómennskt, líkt og Guðmundur hefur minnst á.Hraðinn ótrúlegur. En íþróttin er fyrir vikið orðin stórskemmtileg. Það segir sína sögu að besti leikmaður heims i liði Norðmanna er vaxinn eins og kúluvarpari. Veitir ekki af.
Gleymum þvi ekki - við eigum enn frábæra handboltamenn. Í fáum orðum sagt hóplið af bestu handboltamönnum heims OG bestu þjálfara sama heims.
ÁFRAM ÍSLAND.
Kannski þurfum við að fara í naflaskoðun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 07:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)