Afstaða til lagningar sæstrengs ?????????????

Eitt eru allir sammála um.  Virðist ekki deiluefni.     Neikvæðar hliðar orkupakkans virkjast ef við tengjumst inn í orkunet Evrópu. 

Þess vegna fer ég fram á að fjölmiðlar spyrji þingmenn og forráðamenn  í atvinnulífinu um afstöðu til sæstrengs. 

Hefur enginn tekið eftir ærandi þögninni?   Landsvirkjun t.d. og þeirra sem ólmir bæði vilja virkja og fóru til skamms tíma ekkert leynt  með áhuga sinn að tengjast til meginlandsins. Allir þessir aðilar halda sig undir yfirborðinu þessa dagana.   Kafbátasiglingin hentar þar til orkupakki 3 er örugglega í höfn. 

Hærra orkuverð til almennings dugir mér fullkomlega til andstöðu við væntanlegan gjörning.  Mér er slétt sama um Miðflokk, líf þessarar annars prýðilegu ríkisstjórnar, eða annað í stjórnkerfinu.


mbl.is Sakaði Miðflokkinn um útúrsnúninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 28. ágúst 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband