Færsluflokkur: Dægurmál
16.1.2024 | 12:55
Strokufangar á ferð.
Sunnudagskvöld í nóvember 1957 er bankað þéttingsfast á útidyrnar hjá Guðmundi Axelssyni á Ragnheiðarstöðum í Gaulverjabæjarhreppi. Hann var í rólegheitum að borða kvöldmat með konu sinni. Úti reynast vera þrír menn, nokkuð móðir og sveittir. Guðmundur kannaðist strax við einn sem hafði verið vinnumaður hjá honum á bænum skamma hríð. Það kom fljótt uppúr dúrnum að þeir höfðu allir þrír strokið af Litla- Hrauni líkt og Guðmund grunaði. Þeir koma allir inn og trúlega verið boðið að fá sér hressingu. Fangarnir höfðu allan tímann augastað á og vöktuðu sveitasímann. Gættu þess vel að húsráðendur kæmust ekki í tólið að segja til um ferðir þeirra. Ekki er uppgefið hvað fór á milli þeirra en seint um kvöldið hurfu þeir allir út í náttmyrkrið. Húsráðandi hafði þá samband við lögregluna og lét Guðmundur vita hverjir voru á ferð. Gat hann lítið sagt til um ferðir þeirra eða hvert þeir stefndu út í vetrarnóttina. Ekki var hafin leit um nóttina, en lögregla látin vakta Ölfusárbrú.
Það er ekki nýtt að í umræðu sé bágt ástand húsnæðis og aðstöðu á Litla Hrauni.
Lesa má blaðgreinar um nákvæmlega slík mál frá t.d. 1935, 1956 og 1993. Strok úr fangelsinu voru nokkuð algeng á þessum árum. Slíkt gerist. Sagan geymir strok úr rammbyggðum fangelsum víða um heim, bæði ofan jarðar og jafnvel neðan.
Sama aðferð var notuð 1935 og 1993 (etv. oftar). Verkfærum var stolið af verkstæði fangelsisins. Járnsög og þjalir notaðar til að saga rimla . Fangarnir sem komu við á Ragnheiðarstöðum 1957 náðu að stinga af á matmálstíma, losuðu auðveldlega járnrim í útihliði og voru þá sloppnir út.
Árið 1956 var húsnæðið sagt orðið í mikilli niðurníðslu. Dómsmálaráðherra skipaði nefnd sama ár til að kanna ástand í fangelsismálum. Formaður hennar var Páll Hallgrímsson sýslumaður Árnesinga. Í skýrslu nefndarinnar kemur ýmisisleg fram - t.d. fullyrt að fangar hafi náð að brugga landa innan veggja á Hrauninu og jafnvel selja á Eyrarbakka. Jafnframt er þess getið í skýrslu að þarna hafi lengst af verið vinnuhæli og staðurinn þjónað vel sem slíkur en sé ekki hannaður sem rammbyggt fangelsi. Vegna hraklegs ástands væri húsnæðið einfaldlega illa mannhelt sem fangelsi. Jafnvel klefar með óvirkar læsingar. Gamla stefið, meiri fjárveitingar skorti. Eflaust einnig verið undirmannað í gæslu. Árið 1993 verða uppþot og einnig strok úr fangelsinu. (Sagt frá því í ágætri grein Sigurðar Boga blaðamanns í Morgunblaðinu 13. Janúar 2024). Í kjölfar þess var i raun gerð í fyrsta sinn alvöru mannheld girðing umhverfis svæðið, einnig reist nýbygging og stækkun.
Morguninn eftir mættu strokufangar aftur á sama stað að Ragnheiðarstöðum, hressir og hvíldir . Höfðu þeir þá um nóttina sofið í beitarhúsum nokkuð frá bænum og grafið sig þar heyið. Er þeir komu benti Guðmundur þeim á hversu tilgangslaus þessi tilraun væri að komast undan. Þeir sögðust tilbúnir að fá bílfar með honum aftur vesturúr, með skilyrðum. Hringdu þeir í Sýsluskrifstofuna og sögðust myndu koma átakalaust til baka ef að refsing þeirra yrði milduð. Neitun barst um að nokkuð væri hægt væri að gefa loforð um slíkt á þessu stigi. Ventu þeir þá sínu kvæði í kross og sögðu yfirvaldinu að mikið þyrfti að hafa fyrir að ná þeim aftur í fangelsið og skelltu á. Þeir ruku síðan á dyr og hófu göngu norður engjar á Ragnheiðarstöðum og áleiðis að Miklavatnsmýri.
Ég hitti Bæhrepping fyrir stuttu síðan sem varð vitni að för þeirra ungur að árum. Það fréttist fljótt um hreppinn af ferðum fangannna og skyggni var þannig að hægt var að fylgjast með för frá nokkrum bæjum .
Frá Selfossi voru sendir tveir bílar mannaðir röskleika mönnum eins og það var orðað í Morgunblaðinu. Unga drengnum frá Skógsnesi varð minnisstætt að þeir voru allir í þá daga klæddir í síða frakka. Líkt og fyrrnefndur sveitungi sagði er slíkur klæðnaður ekki hentugur í íslensku kargaþýfi og hvað þá í spretthlaupi að elta unga menn. Þetta er dágóð vegalengd að ganga upp Miklavatnsmýrina. Voru fangarnir orðnir all rjóðir í framan er þeir komu að Hamarsveginum. Einn var orðinn sínu mest mæddur og náðist á þeim slóðum. Sá veitti ekki mótspyrnu. Hinir tveir héldu ótrauðir áfram og tókst ekki að handsama þá.
Áfram var haldið í norð-vestur átt og næst tekin stefnan að Saurbæ (nú i eyði) sem er austan við Vorsabæjarhjáleigu. Þangað var aldrei vegasamband í vegakerfi hreppsins. Þar bjó þá Ívar Guðmundsson bóndi einn á jörð sinni. Opnuðu fangarnir þar hurð og höfðust við inni í hlöðu og hugðust verjast af hörku.
Á nágrannabæ, Hamri bjó þá Kristmundur Sigfússon með konu sinni Ólöfu Ólafsdóttur fá Syðra Velli og börnum. Hann hafði unnið á Litla Hrauni, eða tengst þar Vinnuhælinu og þekkti til. Var hann fenginn til liðs við mennina sem eltu fangana að Saurbæ. Að sögn tókst honum með lagni að tala þá til. Endaði þar flótti þessara ungu manna og þeir gáfu sig fram.
Ekki var þó öllu lokið, þó handteknir væru. Einn þessara þriggja manna var ættaður frá Akureyri og i honum mikil óeirð. Hafði tekið þátt í öllum flóttatilraunum frá Hrauninu þá um haustið og árin á undan - sem voru allnokkrar. Er komið var að Litla Hrauni um kvöldið frá Saurbæ, tókst honum að slíta sig frá fangavörðum og hvarf einn út í náttmyrkrið enn á ný. Aftur var sett lögregluvakt á Ölfusárbrú, ekki ekki fer sögum af því hvenær eða hvar þessi fangi fannst, en hann mun þó hafa náðst að lokum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2024 | 11:10
Ráðherra fer að lögum.
Augljóst að ráðherra skilur ekki stöðu sína og skilyrði fyrir valdheimildum embætta sinna.
Samanburðurinn á við lönd sem við viljum illa bera okkur samanvið.
Hún gat augljóslega notað aðra aðferðafræði en hrokafullt vald. Leyft hvalveiðar áfram með mjög ströngum skilyrðum. Ávítum þessvegna, en þarna fór hún útúr kortinu. Og ekki í fyrsta skipti. Dómstólar hafa áður dæmt gjörninga hennar ólögæta í öðru ráðuneyti.
Vægi 75 ára úreltra hvalveiðilaga metið þyngra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.1.2024 | 14:48
Vinna, skóli, eldgos.
Ég var fenginn til að halda erindi hjá góðum hópi fólks á Selfossi fyrir stuttu síðan. Mjög vinalegar móttökur og enginn sofnaði að ég held.
Smelli þessu hér inn. Aðvörun ; sjálfhverft að hluta.
Komið þið sæl. Ég vil byrja á að þakka fyrir boðið að koma hingað og spjalla við ykkur.
Skipti þessu þannig upp - að segja örlítið frá sjálfum mér. Síðan í seinni hlutanum frá atburðum og veruleika sem er á flestra vörum þessa dagana.
Fæddur er ég hér á Selfossi 1961 og á þann vafasama heiður (var mér sagt af móður minni) að vera fyrsta klukkubarnið á sjúkrahúsinu. Ég var nokkuð stór við fæðingu og þurfti því að notast við svokallaða sogklukku á höfuðið að ég held - til að geta togað almennilega í krakkann. Stærðin hélt sér í hlutföllum fram eftir aldri líkt og sennilega sést á mér
Ágætur vinnufélagi minn við störf inni á hálendi fyrir 45 árum fullyrti að ég væri af svokölluðu vaðfuglakyni. Hár til hnésins og með stóra fætur. Það kæmi sér vel í blautum Flóanum. Í vinalegum skotum okkar á milli kallaða ég hann, sem var frekar lágvaxinn, Þúfutittling úr Þingeyjarsýslu svo staðan var alveg 1 1 og hallaði ekki á neinn. Allt í góðu og hann Rabbi var skemmtilegur maður að vinna með. Tek það fram.
En ég sagði líka við hann trúlega væri bara heilmikið til í þessu. Ætli það kallist ekki þróun tegundanna, líkt og við þekkjum í fræðsluþáttunum hjá Attenborough í sjónvarpinu. Í raun fékk ég sönnun á þessu eitt sinn í spjalli við afgreiðslukonurnar í skódeild KÁ í gamla daga. Konan fullyrti að á Suðurlandi seldust stærri skónúmerin mun betur en á Austurlandi. Það gekk svo langt að deildin í KÁ versluninni hefði skipti við Kaupfélag Héraðsbúa ! Stærstu númerin voru send suður og minni stærðir austur. Þetta er auðvitað rökrétt ef maður hugsar það. Minni þörf á stórum fót við göngur á fjöllum og í skriðum ð
Telst nánast borinn og berfættur á kirkjuhlaði. Er því vanur að hafa kirkju og kirkjugarð í nágrenni heima í Gaulverjabæ þar sem ég ólst upp. Ég er yngstur af fjórum systkinum og heima var líflegt heimilislíf. Það kom til af miðstöð sveitarinnar í Gaulverjabæjarhreppi ef svo má segja. Ætli það kallist ekki að búa í miðbænum ef ég væri í bæ eða borg. Á hlaðinu var
1) Umferðamiðstöð. Bíll frá Bjarna í Túni kom í föstum ferðum 1x eða 2x sinnum í viku. Kom með rekstrarvörur til bænda og tók í staðinn kartöflur, rófur, gulrætur i , egg og margt fleira til Reykjavíkur ( sem bændur komu með á staðinn) .
2) Bensínstöð
3) Símstöð
4) Hreppsskrifstofu ( faðir minn var oddviti hreppsins)
5) Vélaleigu . Búnaðarfélag átti tæki
6) Kirkja og skrúðhús.
7) Til viðbótar hefðbundið íslenskt sveitaheimili og húsdýr. Hjá okkur voru það Kýr ,kindur, hross og einnig svínabú.
Auk þessa er stutt í félagsheimilð Félagslund og Gaulverjaskóla sem starfaði til 2006. Líf og fjör hjá börnum og ungu fólki sem stunduðu sveitaböllin í þá daga. Kliður og köll beggja hópa bárust heim á hlað við ólík tækifæri.
Frá eldri systkinum bárust ýmis áhrif. Bítlarnir. She loves you je, je, je. Varð uppáhaldslag er ég var nokkurra ára. Barst frá plötuspilara systur minnar. Haukur sá elsti var hinsvegar Rolling Stones maður frá fyrstu plötu þeirra félaga. Þessi tónlist smaug inn í mann. Allir þekkja þátt tónlistarinnar í lífi margra. Hve sumir Alzheimer sjúklingar tengja lengi við tónlist þó flest annað sé farið, segir manni margt.
Ég og kona mín Kristín Ólafsdóttir ættuð frá Kirkjulæk í Fljótshlíð tókum við búi í Gaulverjabæ ung árið 1984 og erum enn við þau störf og rekum kúabú.
Á menntaskólaárum í borginni tók ég tvo jarðfræði áfanga sem val og hafði gaman af. Jarðfræðingur hefði ég hinsvegar seint orðið því stærðfræði og eðlisfræði voru ekkert í sérstöku uppáhaldi sem námsgreinar. Ég vann við byggingu Sigöldu (undir lokin) og Hrauneyjafossvirkjana uppi á hálendi sem sumarvinnu og einnig hálfan vetur er ég tók frí eina önn í skóla. Vinnan var ágæt og launin einnig , en umhverfið heillaði mig ekkert sérstaklega. Gróðurlaust með öllu, svartir sandar, möl og grjót. Í Flóanum var ég vanur á sumrin að vera umvafinn grasi , gróðri og lífi. Mig langar heim já austur í Flóa. Samdi textasmiðurinn Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur í þekktu lagi með Savanna Tríóinu. Hugsaði líkt í þá daga. En það er gjörbreytt í dag og gróður hefur lifnað mjög þarna uppfrá. Verið sáð og ræktað mikið.
17 ágúst 1980 er ég var heima í helgarfrí, kom símtal. Heklugos var hafið, sökum nálægðar yrðu vinnuflokkar ekki sendir upp á hálendi til vinnu fyrst um sinn. Á öðrum eða þriðja degi kom kallið og rútan fór með vinnuflokkinn upp Þjórsárdalinn, síðan framhjá Búrfelli á blússandi siglingu. Heklan býsna nálæg. Vegurinn uppúr var sem eggslétt hraðbraut í stað holóttra þvottabretta og malarvega. Öskufallið jafnt yfir allt hafði semsagt stórbætti vegina, en ekki stóð það nú lengi.
Ætli neðanverður Flóinn teljist ekki stúkusæti til að fylgjast með eldgosum í fjarska hér sunnanlands. Við töldum einhvern tímann vel á annan tug gosa sem sést hafa að heiman síðustu áratugi.
Mig rámar í Surtsey 1967 ( hófst 1963). Upphaf Heklugossins 1970 man ég hinsvegar vel. Við vorum stödd inn í símstöðvarherbergi sem snéri beint í austur. Tómas þáverandi oddviti á Fljótshólum var staddur heima og síhækkandi mökkurinn yfir Heklu blasti við útum gluggann. En það voru eldingarnar í boga yfir fjallið sem sitja fastast í minni. Þær voru afleiðingar eldsumbrotanna því þurr dagur var.
Enn á ný lifum við gostímabil og hugurinn er hjá Grindvíkingum þessa dagana. Eldgosin eru samofin sögu okkar og þau flækjast víða fyrir þegar grant er skoðað.
Bara spurning hvar á að byrja, en við getum brugðið okkur til Þingvalla árið 1000 . Heiðnir höfðingjar og goð flykkjast suður yfir heiðar. Takast skal þar á um hvort heiðinn siður skuli víkja fyrir hinum kristna. Þá byrjar jarðeldur í miðju hrauninu milli Bláfjalla og Lambafells. Það má ímynda sér að Vestlendingar, Kjósverjar og fleiri hafa þurft að leggja lykkju á leið sína á leið til Þingvalla. Ýmist kallað Kristnitökuhraunið eða Svínahraun.
Tekist var á með orðsins gandi á Völlunum. Gissur og Hjalti luku máli sínu á Lögbergi af svo mikilli orðakyngi að ótti greip andstæðinga og enginn lagði í að andmæla þeim. Kristnir menn og heiðnir slitu friðinn í framhaldinu. Var þetta allt að klúðrast ?
Í því kom móður maður hlaupandi og sagði stundarhátt að liti úr sem hraunið myndi hlaupa á bæ Þórodds goða
í Ölfusi. (Ekki alveg vitað hvort hann bjó á Hjalla, eða Þóroddstöðum)
Þvínæst lögðu báðir aðilar sitt til málanna útfrá þessari ógn. Orðaskiptin fleyg. Fullyrt var ; Eigi er undur að að goðin reiðist tölum slíkum:
Orð Snorra goða sem svar, var líkast lopavettling uppí viðkomandi. Um hvað reiddust goðin þá, er hér brann hraunið, er nú stöndum vér á. Ég sé þetta jafngilda meiningunni ; Eru jarðeldar eitthvað nýtt á Íslandi? Líttu niður, hvað gekk á í umhverfinu hér á Þingvöllum áður fyrr?
Þetta magnaði sviðið á þessum stóru tímamótum, þarna tókust á góð og ill öfl, ekki bara manna heldur tilverunnar og náttúrunnar. Munnmæli og sögur tengd þessum einstaka viðburði gegnum árhundruð hittu á magnaðan tíma (eldgos) en ekki einstakan.
Hraunfoss steinrunninn sést steypast fram stutt frá Hjalla . Svokallað Þurárhraun. ( Á leiðinni milli Hveragerðis og Þorlákshafnar) Það var lengi ( nokkur hundruð ár) talið vera umrætt hraun sem rann árið 1000. Ummerkin og staðsetning myndu smellpassa. En seinni tíma rannsóknir hafa sýnt að þetta hraun rann nokkru fyrir landnám. Þetta stemmdi því ekki, en var samt ekki endilega rangt hjá sendiboðanum á Þingvöllum. (þó það færi ekki alla leið) Hraunið flæddi í suðvesturátt með látum. Enginn vissi hvar það myndi enda. Ekki frekar en fyrir stuttu síðan í okkar nútíma þegar hraunið úr Meradölum nálgaðist Suðurstrandarveginn. Enginn gat sagt með vissu var það myndi stöðvast.
Á leið til Reykjavíkur sést hvar svokallaður Svínahraunsbruni (þe. Hraunið) hefur stöðvast til austurs allavega. Vantar lítið uppá að það hafi runnið hafi alla leið að hlíðinni fyrir neðan Hveradalabrekkuna á sínum tíma. Virkjunin er þar í óvarinni hvilft. Ég var alltaf hissa að mannvirkin væru ekki staðsett ofar í hlíðinni uppá hugsanlegt hraunrennsli.
En gleymum okkur ekki í kvíða og svartnætti. Við búum á eldfjallaeyju. Ég hef alltaf dáðst að hve sumum þessum hamförum og eldvirkni við höfum getað snúið til góðs . Þó auðvitað ekki öllum.
Dæmin eru mörg. Hiti nýja hraunins í Eyjum var nýttur til húshitunar í nokkra áratugi. Höfnin í Vestmannaeyjum varð betri eftir gos. Gosið í Eyjafjallajökli var start túristasprengjunnar í Íslandi og sér ekki fyrir endann á . Eldvirknin er undirstaða heitavatns gullnámunnar við Svartsengi. Staðan þar er tvísýn nú, en þar er áhætta sem var tekin við byggingu þess mannvirkis. Þannig má áfram telja.
´Ég tók saman grein um upphaf síðasta Kötlugoss árið 1918 sem birtist í Morgunblaðinu sl. sumar. Fyrirvarinn fyrir íbúa í nágrenni var enginn. Þá varð manni betur ljóst hversu gífurlegar framfarir hafa orðið í vöktun og óróamælingum helstu eldstöðva hérlendis. Ég dáist alla daga af mikilli færni og þekkingu okkar helstu sérfræðinga.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.12.2023 | 12:01
Aðeins eitt fyrirtæki í sorpi ?
Íslenska Gámafélagið hefur flutt út flokkað plast ofl. í fjölda ára til orkuvinnslu erlendis. Tæp 20 ár síðan flokkun hófst í nokkrum sveitarfélögum sem nýta þeirra þjónustu.
Hér er því ekki frumherja starf, en af einhverjum ástæðum virðist starfsemi fyrrnefnds fyrirtækis vera undir radarnum hjá fjölmiðlum.
Sorpa er stolt að finna upp hjólið þessa dagana. En ekki vonum seinna. Síðustu mögulegu tímar í það samkvæmt áætlun ESB. M.ö.o. þetta var hummað fram af sér fram á síðustu stundu.
Fyrstu ruslabaggarnir farnir til Svíþjóðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.12.2023 | 21:35
Útvíkkuð endurskoðun Ríkis.
Ríkisendurskoðun er komin á þann stað - að fátt virðist stofnuninni óviðkomandi. Nýjast er að snillingarnir þar á bæ eru orðnir sérfræðingar í ástandi húsa og fangelsismálum ! Mikið hæfileikafólk.
Nauðsyn þess er augljós að skipta um nafn á þessari ríkisstofnun. Velti fyrir mér hvað löggiltum endurskoðendum finnst um þessa útrás. Tölur eru að verða aukaatriði.
Hitt er annað mál að i þessu tilviki hitta þau á rétt. Húsin á Ltla - Hrauni orðin býsna gömul þau elstu, og aðstaðan eflaust ekki samkvæmt nýjustu tísku í þessum málaflokki. Það er nokkuð augljós niðurstaða.
Hver væri draumastaðan að mati Páls? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2023 | 08:22
Bláa Lónið.
Það er illskiljanlegt (þó ekki, peningar altsvo) að stjórnendur Bláa Lónsins loki ekki svæðinu í nokkra daga til öryggis.
Þess í stað kasta þeir að hluta ábyrgðar til Almannavarna og jarðvísindamanna.
Alvarleg staða sem komin er upp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.10.2023 | 22:12
Sama ástand fyrir ekki löngu.
Eldar. Það eru engin 800 ár síðan glímt var við það fyrirbæri síðast.
Það eru nú ekki nema um 48 ár síðan svipað ástand var í gangi og nú við Svartsengi, Bláa Lónið og Grindavík.
Kröflueldar fyrir norðan stóðu yfir í 9 ár. Hófust árið 1975. Nýbúið var að reisa Kröfluvirkjun í nágrenni og ég man umræður um hverslags óheppni þetta væri eiginlega - ef skemmdir yrðu á mannvirkjum, sem margir óttuðust.
Vissulega er meira í húfi á Suðurnesjum núna. Fleiri mannvirki og mikil verðmæti.
Mögulegt að virknin sé að færast á milli staða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.10.2023 | 00:25
Ólík stríð.
Stríðin staðsett í Úkraínu og hinsvegar Ísrael og Palestínu - eru gjörólík.
Gegnsýrt hatur í Ísrael mót Palestinu. Magnað upp mann fram af manni. Kynslóð eftir kynslóð. Samfelld illska og stöðug hefnd á báða bóga - aftur og aftur.
Þeirri hugmynd laust niður fyrir 80 árum eftir eftir hörmungar seinna stríðs og helför Gyðinga að láta þá fá all stórt landsvæði í Ástralíu. Gjöfult en nánast óbyggt þá. Þar gætu Ísraelsmenn stofnað sitt ríki.
Þess í stað þótti fallandi nýlenduveldi þess umkomið að bjóða svæði mitt í landi með 2000 ára sögu og reka hluta íbúa þess í burtu.
Hefði fyrra boðið ekki orðið friðsælli lausn ?
Í Úkraínu er drifafl morða,eyðileggingar og stríðsbrölts - klikkun i kolli aðeins eins manns. Þ.e. Putin. Fráleitt (fyrir innrás) í upphafi að hatur hins almenna Rússa hafi verið ástæðan. (Uppfært orðalag)
Mér leið eins og ég væri að brotna niður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.9.2023 | 22:02
Finland or Iceland ?
Við og Finnar, einmitt. .Ég var eitt sinn í hressum hóp á hóteli í London. Barþjóninn sveittur að afgreiða . Glottleitur spurði hann einfaldrar spurningar.
"Finnland eða Ísland ? " Ég vissi fyrst ekki hvort það var hljómfall tungumálsins eða stíf drykkjan. Grunaði samt það síðarnefnda :-)
Mikið drukkið og lítið talað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.9.2023 | 22:27
Ógn og náð hjá Kötlu.
Eftirfarandi skrif mín voru send í Morgunblaðið og birt 29. ágúst 2023.
Eiga sér stað örlagadag 1918. Eru um góð og slæm tíðindi. Íslenska þrjósku og vinnusemi. Hamfarir, en æðruleysi náð og miskunn. Að mestu byggt á heimildum.
.
Það er haustdagur þann 12. október árið 1918.
Kona ein í Álftaveri undirbýr sláturgerð . Smaladagur og féð væntanlegt ofan úr afrétti yfir Sand seinnipart dags. Fylgifiskur þess, að enginn vel tamdur vinnuhestur er tilkippilegur heima á bænum. Hana vantar nefnilega tunnu. Hún leggur því reiðing á sæmilega bandvant tryppi fjögurra vetra, annað ekki að hafa á smaladegi. Hesturinn sá er ýmist staður í taumi eða pínulítið rokgjarn,svo ferðin niður í fjöru sækist frekar seint. Á förnum vegi hitti hún Gísla hreppsstjóra í Norðurhjáleigu. Sá flytur henni tíðindi í óspurðum fréttum;
Heimstyrjöldinni er lokið, þeir hafa samið um vopnahlé ! sagði Gísli brosleitur á svip.
Of góð tíðindi boða ekki gott. Jafnvel heimsendi mælti móðir mín stundum !svaraði konan sveitungi hans og hélt síðan för sinni áfram.
.
Katla tók að gjósa og hófust lætin um klukkan þrjú þennan dag. Sögur um byrjun eldgosa er samofin sögu þjóðarinnar í kornungu landi jarðfræðilega séð. Engum óróamælum Veðurstofunnar var til að dreifa í þá daga, og fyrirvarinn lítill sem enginn. Þó voru jarðskjálftar tveimur tímum áður í nágrenni. En slíkt gerist, alloft. Á stórum svæðum landsins kippum við okkur ekki sérstaklega upp við slíkt.
Við slíkar aðstæður eru sögur af fólki í þessu tilviki Skaftfellinga mjög fróðlegar. Eftirfarandi gerðist daginn sem Katla tók að ausa úr iðrum sínum og bræða kringum sig. Án efa eru fleiri sögur geymdar víða.
.
Jóhann Pálsson í Hrísnesi stikaði stórum skrefum yfir Hólmsárbrú. . Leið hans lá suður í Álftaver . Hann var kominn nokkuð lengra, þegar hann heyrði aukinn hvin í ánni. Hann lýsti aldraður í viðtali við Ríkisútvarpið að móða hafi verið á Kötlu og skyggni takmarkað á fjallið um þetta leyti. Hann heyrði til viðbótar drunur og grunaði fljótt hlaup í ánni, snéri við á punktinum og þaut beinustu leið til baka.
Ég var aðeins 32 ára og gat því hlaupið sæmilega hratt.
Hann slapp yfir brúna til baka og aðspurður hvort hann hefði séð hana fara niður - svaraði hann; nei, ég sá hana bara hverfa undir strauminn, það segir hvað gekk á og hvað þetta stóð tæpt. Orðatiltækið . að sleppa með skrekkinn fær satt að segja æðri merkingu sbr. lýsingar Jóhanns.
Sagnir voru strax um að hann hefði sloppið, en hundurinn á hælum hans drepist í flaumnum. Jóhann sagði það ekki rétt. Hann greyið hefði komið fram á nágrannabæ daginn eftir. Mælti síðan með skaftfellskri hægð og hógværð ; En það var svo skrítið að hann jafnaði sig aldrei á atvikinu. Í viðtalinu við Stefán Jónsson var líkt og Jóhann væri að lýsa skrámu eða minniháttar atviki. Virtist í engu hafa bugast yfir minningunni, sem engum hefði þótt mikið eftir slíka reynslu.
.
Tveir vinnumenn Sveins Sveinssonar í Ásum voru í verslunarferð út yfir Sand með vagnalest. Þeir fóru yfir Múlakvísl nokkrum mínútum fyrir hlaupið og höfðu ekki grænan grun um hvað gekk á, og í vændum var. Þar fyllti farveginn af vatni og aur, á augabragði nánast á hæla þeirra.
.
Sláturtíð stóð yfir líkt og dagsetningin í október segir til um. Fjárrekstrar voru því á Mýrdalssandi
hægri / vinstri þessir dægrin. Bílaflutningar ekki hafnir og féð því rekið til slátrunar í Vík.
Enn var forsjón guðanna - eða hvers sem réði, með í för. Það varð tunnuskortur í Víkinni gosdaginn mikla.
Án þeirra var engin slátrun. Allt saltað í tunnur. Aðrar heimildir segja að saltskortur hafi bjargað mannslífum, trúlega var það skortur á hvorttveggja. Frysting i stórum stíl ekki komin til sögunnar á þessum tíma. Boð voru því látin berast frá sláturhúsinu í Vík að ekkert væri hægt að reka þennan dag fé til slátrunar. Á meðal degi hefðu margir rekstrar og lestir verið á Sandinum. Til viðbótar fóru síðustu til baka austur sandinn til síns heima sólarhring fyrir hamfaradaginn mikla. Þeir sluppu því líka sem var hreint ótrúlegt happ fyrir marga.
.
Þá víkur sögunni aftur niður í Álftaver.
Bændur þaðan voru á afrétti gosdaginn mikla. Þeir voru dreifðir um austurhluta Mýrdalssands. Líkt og fleiri Skaftfellingar sluppu þeir með naumindum undan hlaupinu með féð heim. Rekstur aðeins klukkustund eða tveimur síðar fram sandinn - hefði að líkindum þýtt ógn og stórhættu.
Loks fann konan tunnu í fjörunni sem hentaði. Kom á hana böndum. Gerir sila og hefur til klakks, en á móti hengir hún viðardrumb (til jafnvægis). En hún fór illa á klakk og seinlega gekk ferðalagið heim. Tosaðist samt áfram, en þá tók hún að heyra ógnvænlegan nið úr norðurátt. Fóru þá einnig að sjást mikil ský yfir Mýrdalsjökli austanverðum. Til viðbótar var vatn var orðið á vegi hennar þar sem hún átti síst von, og byrjaði að tefja för.
Leiðina til baka um sína heimaslóð - leist henni alls ekki á blikuna. Sveitungar hennar í Álftaveri, aðallega konur, yngra fólk, og börn (aðrir voru við smölun eða að taka á móti safninu) höfðu hópast upp á hæstu hóla og hæðir í túnum. Konan varð satt að segja felmtri slegin og datt fyrrnefndur heimsendir helst í hug. Blessaði sig í bak og fyrir.
Hún heyrir hróp og köll , og fólkið skipaði ;
Hentu frá þér bannsettri tunnunni og flýttu þér sem mest !
Því hlýddi hún hinsvegar ekki. Tryppið, tunnan og hún sjálf- skyldu saman heim á þrjóskunni.
Er hún náði loks til fólksins voru henni sögð tíðindin. Katla var farin að gjósa. Hún sýndi lítil svipbrigði. Það var engu líkara en axlir hennar sigju slakar niður. Virtist sem smá feginleiki á ógnartíma.
Nú já Katla. Ekki annað !
Heimildir,: Byggt á frásögn Þórarins Helgasonar og öðru efni.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)