Færsluflokkur: Dægurmál

Hvar er Ríkisendurskoðun ?

Stundum birtist Rikisendurskoðandi fljótt og vel með " vöndinn" ef stjórnsýslu og ekki síst Ríkisstjórn verður á.     Mín tilfinning er að núverandi " endurskoðandi" hafi stundum haft meiri áhuga á pólitík en fjármunum ríkis og almennings. 

Af hverju komu ekki athugasemdir þaðan um þessi mál? Og fyrr. 

Spyr sá sem ekki veit.


mbl.is Lausatök í styrkgreiðslum til flokkanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskur.

Þar kom að því.  Íslenskur heimsklassa þjálfari varð Íslendingum að ( ótímabæru) falli.  
Eftirá að hyggja.  Þetta hlaut einhvern tímann að rekast á.


mbl.is Dagur: Tilfinningarík stund fyrir mig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnaðir allir.

Þvílík veisla að fylgjst með drengjunum.  Frábær frammistaða hér í byrjun móts.  Viktor Gísli er einstakur markvörður og með stórkostlegar staðsetningar.

Enn samt falla íslenskir þjálfarar á að dreifa álagi á leikmenn meira en gert er.  Nú er allt að því áður óséð breidd og gæði í leikmannahópnum.  Því hægt að gera enn betur, algjör óþarfi var til dæmis að keyra á okkar bestu einstaklingum i  fyrstu tveimur leikjunum.  Vitað að þetta voru mun getuminni þjóðir en Ísland.  Þeir voru vissulega ekki samfellt,   en óþarflega mikið (langar lotur) inná.

Í leiknum við Egypta kom hálfgerður Gummi Gumm upp í Snorra Steini.      Hauki Þrastarsyni var skellt inná í nokkrar sekúndur og skipað að skora mark.        Hann hefði nú getað fengið amk.  tvær sóknir til að komast betur inn í flæðið.

Ef þetta frábæra lið kemst alla leið í úrslitin skiptir sköpum að drengirnir séu ekki búnir í löppunum seinni hálfleiki úrslitanna.      Þá mun dreifing álags skipta í fyrri hluta móts, öllu máli.

En vel gert í heildina , og þetta er einungis vinsamleg ábending


mbl.is Viktor Gísli einn af þeim bestu á HM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hey.

Sá galli fylgir sumum tegundum nútíma og jafnvel eldri tíma orkueyðslu að úrgangur fylgir. Á okkar tímapunkti í sögunni kemst fátt annað að en mengun andrúmslofts og hlýnun í kjölfar þess. Ég gleymi aldrei fána fyrir utan hótelglugga í London fyrir 33 árum. Hann var svartur af kolaryki bara við að blakta. Líkt og hefði verið stappað á honum útá stétt.
En margt hefur breyst á þessum árum. Síun á pústi/ útblástri frá nýlegum dísil og bensínvélum er orðin mikil í dag frá því sem var - hér í Evrópu og á Vesturlöndum. Slíkt vill gleymast.
Vandamálin eru tengd milljarða þjóðunum sem teljast stærstar í öllu samhengi. Þau eru sultuslök yfir öllu sínu ólofti og mengun. Indverjar , Kínverjar og fleiri stórþjóðir. Mest tengt ósíuðuðum kola, iðnaðar og farartækja útblæstri.

En hvernig voru samgöngumálin í borgunum fyrir segjum 130 – 200 árum. Var engin mengun ?

Megin forsenda þess að borgir tóku að stækka mikið var ein uppgötvun sem lét lítið yfir sér og hefur ekki verið flaggað mikið í borgunum sjálfum. Þessi bylting var meira tengd við fæðuöflun á kaldari svæðum jarðar og skipti ekki bara einhverju heldur öllu máli á ísaköldum svæðum líkt og til dæmis Íslandi.

HEY.

Ekki bara gátu kaldari svæði jarðar byggst mannfólki smá saman vegna heysins. Borgir gátu líka farið að stækka.

Ástæðan var einföld. hægt var að þróa samgöngutæki um borgirnar sem knúin voru eldsneyti sem heitir HEY. M.ö.o hægt var að halda hesta í “ norðlægari” borgum.
Farartækin / flutningatækin voru að sjálfsögðu hestvagnar, en til að setja stærðir í samhengi voru íbúar í London kringum 1850 og nokkru síðar orðnir rúmar fjórar milljónir. Hestafjöldinn í borginni var á sama tíma orðinn kringum 50.000 talsins.

En því fylgdi “mengun” innan gæsalappa. Það kallast hrossaskítur á íslensku sem var eðlilegur fylgifiskur þessa hrossafjölda sem “knúðu” hestvagna til flutnings á fólki og vörum á steinlögðum strætum stórborga t.d. London og New York. Fyrr á öldum höfðu bændur í nágrannabyggðum tekið þessum fína áburði fagnandi, en þarna hafði enginn undan að flytja magnið í burtu sem safnað var í hauga.

Í upphafi ljósmyndatækni voru myndir úr stórborgum yfirleitt sparilegar sólarmyndir af sópuðum strætum og torgum. Rakst á þessar myndir sem sýna hvernig þetta gat þó orðið þegar ekki hafðist undan að hreinsa til. Ef eitthvað er að marka mínar heimildir var árið 1894 orðin raunveruleg “krísa” með úrganginn. Þetta vandamál leystist þó af sjálfu sér með nýrri tækni, nokkrum árum síðar . Þá komu nefnilega til sögunnar bæði bílar og sporvagnar.
——————————-
D3C2C4C7-B70B-4E3C-A354-EE7EB73BAAB5


Sparnaðarráð.

Innlegg í sparnaðinn væntanlega hjá Kristrúnu forsætisráðherra.  

Sendið þetta fólk heim til sín.   Erlendir ríkisborgarar ( 1/3 fanga á Íslandi) geta annaðhvort afplánað dóma i sínu heimalandi sem hafa alvarlegustu brotin á samviskunni.  Hinir glæpamenn ( með vægari dóma)  mættu fá 10 - 20 ára strangt bann á endurkomu hingað til lands.  Úr landi með fólkið. 

Óþarfi  að vísa einungis flóttamönnum úr landi.


mbl.is Aldrei fleiri útlendingar afplánað dóm á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lífeyrissjóðir taka þátt í kjaraskerðingu.

Taka má þann pól = að lífeyrissjóðir sem eru stærstu eigendur stærstu verslanakeðja landsins haldi uppi háu vöruverði / matarverði.  

Eru þeir réttu aðilarnir til að okra ?  Maður spyr sig. 

Stundum þurfa nú stórir stöndugir aðilar að halda aftur af sér ( hækkunum).


mbl.is Engin umræða um verðhækkanir erlendis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúleg mynd.

Þær gerast ekki stórbrotnari myndirnar.

Til hamingju Gunnar Freyr. 

Þetta flokkast ekki sem hlýtt augnaráð.  Telst eldheitt og 

stórhættulegt.


mbl.is Íslendingur valinn ljósmyndari ársins í New York
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gefið þeim frið.

Lofið stöllunum bara að ljúka þessu fréttamenn. 

Eða sleppið að svara konur.  Það virðist verða krónískt hja flokkum sem hafa verið lengi i stjornarandstöðu að gleypa alla hljóðnema sem beint er að þeim.   Öll athygli er nefnilega svo góð. 
Nú eru viðkomandi í annari stöðu.  Mikil vinna er framundan.  Úr fortíðinni hafa stjórnmálamenn yfirleitt lokað sig af við þetta verk.  Er trúlega besta aðferðin. Ekki hver og einn að segja til um ganginn. 


mbl.is Fundur hafinn í Smiðju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleymdist að ræða orkuverð.

Ekki farið mikið fyrir umræðu um rafmagns og orkuverð til almennings í þessu landi.

Í orkukreppu Evrópu síðustu ár kristallaðist hversu vel sett við vorum á Íslandi.  Stríðstímar og óvissa í öðrum heimshlutum þrykkti upp orkuverði á meginlandinu samstundis.

Á meðan ríkti hér stöðugleiki á heimilum og hjá minni fyrirtækjum (hvað þennan útgjaldalið varðar)  - í öllum samanburði við nágrannalöndin.        Í því felast lífsgæði og öryggi hvað snertir afkomu fólks.   Í stuttu máli jafnaði það allan samanburð á framfærslu Íslendinga miðað við erlendis .   M.ö.o slíkt eru líka peningar í budduna.

Forstjóri Landsvirkjunar hefur getið þess í viðtölum að orkuverð "eigi " að vera hátt á Íslandi.     "Dýrt eins og til dæmis fiskur ...! " , sagði hann í viðtali við RÚV fyrir nokkru.

Amen.     

Og ekki stóð á því. Hann og væntanlega stjórn Landsvirkjunar hefur hækkað verðið um heil 25%  á stuttum tíma síðustu mánuði.      Klæjar greinilega í lófana að hækka enn frekar.

Umræða um þessi mál hefur ekki verið fyrirferðarmikil í kosningabaráttu 2024.

Það er forgangsmál að almenningur njóti áfram hagstæðs orkuverðs.  Það hefur í nokkra áratugi verið einkenni íslensks neyslu og fjármálaumhverfis.

Leið Norðmanna, þess orkublindfulla samfélags er víti að varast hvað varðar verð á rafmagni til almennings.  Það er rándýrt m.a. vegna þess að  braskarar og fjárfestar fá að ráða för.


mbl.is Samið um kaup á 28 vindmyllum á 20 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsti forseti Alþingis.

Að líkindum er Dagur á leið að verða forseti Alþingis, ef ráðherrastóll er ekki í boði. 

Hvort Kristrún hefur gaukað því að honum skal ósagt látið, en ef himinskaut Samfylkingar í fylgi halda í næstu kosningum verður flokkurinn í stöðu til að ráðstafa embættinu.

Dagur fengi ráðherralaun, en þó ekki ráðuneyti.   Semsagt öll hæfilega ósátt, eins og stundum gerist í pólitík. En Kristrún virðist enn einbeitt um væntanlega titla Dags.  Verður þó trúlega beitt ákveðnum þrýstingi af sumum flokksfélögum að gera hæfilega  vel við fyrrum stjóra.


mbl.is Degi var brugðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband