Vel meint.

Vandamálið er undirbúningstími og lágmarks framkvæmdatími.

Ætli þyrfti ekki  lágmark nokkra mánuði í undirbúning.   Síðan á að giska 1 árs framkvæmdatíma.     Höfum við þann tíma?    Efast.

Því miður. En fín hugmynd, og auðvitað mA setja upp reikningsjöfnu um viðleitni til að verja margra milljarða mannvirki.


mbl.is Vill hraunbrú yfir Suðurstrandarveg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fóður svína ?

Í USA er mjög frjálsleg löggjöf um ( svo ekki sé nú meira sagt)  um efni í fóðri gripa til að flýta eldistíma og fá holdmeiri gripi.  M.ö.o tíðkast að blanda lyfjum í fóður þ.á.m. hormónum.  Eftirlit með slíku er ekki eins stíft og í Evrópu.

þú ert það sem þú borðar, er allavega sagt stundum. 


mbl.is Kennir neyslu svínakjöts um keppnisbann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ástæðan m.a. áhugaleysi fjölmiðla.

Fjölmiðlar og þá sérstaklega RÚV flytja engar fréttir af sjávarútvegi nema neikvæðar.  Er nema vona að vitneskjan,fræðsla og áhugi sé lítill hjá almennningi.   

Dæmi ; kom nokkur frétt um ný glæsileg skip Samherja fyrir stuttu ?     Oh nei,  gleymdu því.

Aflafréttir eru liðin tíð,  Brjóstastækkun eða eitthvað álíka hjá Kardashian systrum þykir meira áríðandi efni til að miðla. 


mbl.is Of margir tengi ekki við sjávarútveg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki búið að sanna á sig 55 árum?

Það er látið eins og einkarekstur á læknastofum í heilbrigðiskerfi sé að hefjast.

Er fagfólk og þjónusta bara ekki búin að sanna sig á bráðum sex áratugum!  Væll og andstaða ráðherrans í garð einarekinnar þjónustu er illa i takti við tugþúsundir almennings sem njóta góðs af. 

Kostnaðar - aðhald er hins vegar annar hlutur og að sjálfsögðu á enginn ( á neinum tíma)  að geta skrifa  blinda óþarfa reikninga á ríkið - umfram þarfir.

Þrátt fyrir allt sparast nefnilega kostnaður ríkisins á móti.


mbl.is Domus Medica lokað um áramót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband