26.3.2022 | 21:38
Ooobssss.
Varla hefur þetta "Frudean slip " hjá Biden forseta farið vel í Putin. Kreml titrar.
En alltaf kemur betur í ljós hver var stórmenni síðustu áratuga eða alda í Rússlandi. Hefði náungi líkur Putin, en ekki Mikhail Gorbachev verið við völd fyrir rúmum 30 árum - væru Lettland,Litháen, Tékkó og margar fleiri, ekki frjálsar og framsæknar lýðræðisþjóðir í dag. Sú staðreynd að hervaldi var ekki beitt af hálfu Rússa (Sovétmanna) þá - breytti heimsmyndinni.
Staðan er gjörbreytt í dag því miður.
En gleymum því ekki í öllu þessu, að Rússland á sér merka sögu og íbúar ( meðal Jónar og Gunnur) í þessu stjarnfræðilega landflæmi eiga miklu betra skilið.
Það kaus enginn í þjóðaratkvæði að ráðast inn í Úkraínu. Bara enn einn Hitler, Napoleon, Aldexander mikli... Stalín, mættur á svæðið. Putin hlýtur að langa í þann flokk.
![]() |
Söguleg stefnubreyting dregin til baka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2022 | 16:30
Sagan endalausa, aftur,aftur,aftur,af.........
Núverandi ógnarástand í Úkraínu, leiðir hugann að stórum stríðum sem örfáir starta. (Þjóðir hefja sjaldnast stríð). Hvenær hefur beinlínis verið þjóðaratkvæðagreiðsla um innrás í annað land? Leyf mér að giska. Aldrei. - Sagan segir okkur nefnilega, að einungis örfáir galnir og hálf galnir karlmenn hafa séð um að kveikja eigin hatursneista gegnum aldir. Og gera enn.
Bossinn Putin vill deila og drottna - yfir löndum og alþýðu. Honum dugir ekki stærsta land heims til þess.
Bossavers
Vér bossarnir berum vorn kross.
Aðeins brotastrik skilur oss
frá alþýðu manna.
Þá er sjálfgefið að sanna:
Vér = hún
______
oss
(Þorsteinn Valdimarsson)
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)