Ótrúlegt lið.

Ekki hægt að fjölga meir lýsingarorðum hversu frábært afrek þetta er hjá drengjunum og stjórnendum landsliðsins.

Sjaldan minnst á við afrek líkt og þetta hversu miklar þakkir þeir eiga líka skilið sem hafa þjálfað og haldið utanum  afreksmenn sem þessa upp alla yngri flokka á Íslandi.

Verð nú að viðurkenna að mér leist hreint ekkert á blikuna í æfingaleikjum liðsins síðasta ár. Fjöldamörg töp í röð. Þar söknuðu þeir greinilega mjög markvarðar síns Hannesar Halldórssonar sem átti í meiðslum.

algjörlega frábært og liðið er löngu komið gjörsamlega framúr öllum vonum og væntingum landans.  Þessvegna stóð bláa hafið nánast gapandi í stúkunni að leik loknum.  Fólk trúði þessu vart.

 


mbl.is Lars: Þetta var ósvikin gleði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband