18.9.2017 | 06:38
Breyta lögum.
Er umdeilt að breyta lögum um uppreist æru?
Mér heyrist ekki. Af hverju vindur þingið sér þá ekki í verkefnið.? Slíkt væri mögulegt á stuttum tíma.
Þeir eiga þakkir skyldar sem vöktu athygli á fáránleika þessa lagaákvæðis í nútímanum (hvort sem það voru fórnarlömb glæpa, aðstandendur eða ráðherrar.) Allir , öll hver sem er.
Lagaákvæðis , sem er svo séríslenskt að ógjörningur er að þýða beint á erlendar tungur.
Fréttamiðlar um allan heim eru þvi eitt spurningamerki og útskýringar misviturra íslenskra fréttaritara og álitsgjafa á aðalatriðum og þessarar lagahefðar fara fyrir ofan og neðan garðinn víða um heim.
En nei. Þrátt fyrir vilja að líkindum nær allra þingmanna og 95% almennings verður svo tæpast.
Miklu betra að hafa eitthvað áþreifanlegt til að fjargviðrast um í kosningabaráttu og nota loforð um lausn sem beitu fyrir kjósendur í komandi kosningabaráttu.
Ráðherrum heimilt að kynna sér gögnin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)