Færsluflokkur: Dægurmál

Sama ástand fyrir ekki löngu.

Eldar.  Það eru engin 800 ár síðan glímt var við það fyrirbæri síðast. 
Það eru nú ekki nema um 48 ár síðan svipað ástand var í gangi og nú við Svartsengi, Bláa Lónið og Grindavík.

Kröflueldar fyrir norðan stóðu yfir  í 9 ár.  Hófust árið 1975.  Nýbúið var að reisa Kröfluvirkjun í nágrenni og ég man umræður um hverslags óheppni þetta væri eiginlega - ef skemmdir yrðu á mannvirkjum, sem margir óttuðust.

Vissulega er meira í húfi á Suðurnesjum núna. Fleiri mannvirki og mikil verðmæti.


mbl.is Mögulegt að virknin sé að færast á milli staða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólík stríð.

Stríðin staðsett í Úkraínu og hinsvegar Ísrael og Palestínu - eru gjörólík.   

Gegnsýrt hatur í Ísrael mót Palestinu. Magnað upp mann fram af manni. Kynslóð eftir kynslóð. Samfelld illska og stöðug hefnd á báða bóga - aftur og aftur. 
Þeirri hugmynd laust niður fyrir 80 árum eftir eftir hörmungar seinna stríðs og helför Gyðinga að láta þá fá all stórt landsvæði í Ástralíu.  Gjöfult en nánast óbyggt þá. Þar gætu Ísraelsmenn stofnað sitt ríki. 

Þess í stað þótti fallandi nýlenduveldi þess umkomið að bjóða svæði mitt í landi með 2000 ára sögu og reka hluta íbúa þess í burtu.

Hefði fyrra boðið ekki orðið friðsælli lausn ? 

Í Úkraínu er drifafl morða,eyðileggingar og stríðsbrölts - klikkun i kolli aðeins eins manns. Þ.e. Putin.  Fráleitt (fyrir innrás) í upphafi að  hatur hins almenna Rússa hafi verið ástæðan. (Uppfært orðalag) 


mbl.is „Mér leið eins og ég væri að brotna niður“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Finland or Iceland ?

Við og Finnar, einmitt.  .Ég var eitt sinn í hressum hóp á hóteli í London.  Barþjóninn sveittur að afgreiða .  Glottleitur spurði hann einfaldrar spurningar.

 "Finnland eða Ísland ? "  Ég vissi fyrst ekki hvort það var hljómfall tungumálsins eða stíf drykkjan.  Grunaði samt það síðarnefnda :-) 


mbl.is „Mikið drukkið og lítið talað“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ógn og náð hjá Kötlu.

Eftirfarandi skrif mín voru send í Morgunblaðið og birt  29. ágúst 2023.
Eiga sér stað örlagadag 1918. Eru um góð og slæm tíðindi. Íslenska þrjósku og vinnusemi. Hamfarir, en æðruleysi náð og miskunn. Að mestu byggt á heimildum. 
………………….

 

Það er haustdagur þann 12. október árið 1918.
Kona ein í Álftaveri undirbýr sláturgerð . Smaladagur og féð væntanlegt ofan úr afrétti yfir Sand seinnipart dags. Fylgifiskur þess, að enginn vel tamdur vinnuhestur er tilkippilegur heima á bænum. Hana vantar nefnilega tunnu. Hún leggur því reiðing á sæmilega bandvant tryppi fjögurra vetra, annað ekki að hafa á smaladegi. Hesturinn sá er ýmist staður í taumi eða pínulítið rokgjarn,svo ferðin niður í fjöru sækist frekar seint. Á förnum vegi hitti hún Gísla hreppsstjóra í Norðurhjáleigu. Sá flytur henni tíðindi í óspurðum fréttum;
„ Heimstyrjöldinni er lokið, þeir hafa samið um vopnahlé !“ sagði Gísli brosleitur á svip.
„Of góð tíðindi boða ekki gott. Jafnvel heimsendi mælti móðir mín stundum !”svaraði konan sveitungi hans og hélt síðan för sinni áfram.


….
Katla tók að gjósa og hófust lætin um klukkan þrjú þennan dag. Sögur um byrjun eldgosa er samofin sögu þjóðarinnar í kornungu landi – jarðfræðilega séð. Engum óróamælum Veðurstofunnar var til að dreifa í þá daga, og fyrirvarinn lítill sem enginn. Þó voru jarðskjálftar tveimur tímum áður í nágrenni. En slíkt gerist, alloft. Á stórum svæðum landsins kippum við okkur ekki sérstaklega upp við slíkt.
Við slíkar aðstæður eru sögur af fólki – í þessu tilviki Skaftfellinga mjög fróðlegar. Eftirfarandi gerðist daginn sem Katla tók að ausa úr iðrum sínum og bræða kringum sig. Án efa eru fleiri sögur geymdar víða.


….
Jóhann Pálsson í Hrísnesi stikaði stórum skrefum yfir Hólmsárbrú. –. Leið hans lá suður í Álftaver . Hann var kominn nokkuð lengra, þegar hann heyrði aukinn hvin í ánni. Hann lýsti aldraður í viðtali við Ríkisútvarpið að móða hafi verið á Kötlu og skyggni takmarkað á fjallið um þetta leyti. Hann heyrði til viðbótar drunur og grunaði fljótt hlaup í ánni, snéri við á punktinum og þaut beinustu leið til baka.
„Ég var aðeins 32 ára og gat því hlaupið sæmilega hratt“.
Hann slapp yfir brúna til baka og aðspurður hvort hann hefði séð hana fara niður - svaraði hann; „nei, ég sá hana bara hverfa undir strauminn“, það segir hvað gekk á og hvað þetta stóð tæpt. Orðatiltækið . „að sleppa með skrekkinn“ fær satt að segja æðri merkingu sbr. lýsingar Jóhanns.

Sagnir voru strax um að hann hefði sloppið, en hundurinn á hælum hans drepist í flaumnum. Jóhann sagði það ekki rétt. Hann greyið hefði komið fram á nágrannabæ daginn eftir. Mælti síðan með skaftfellskri hægð og hógværð ; „ En það var svo skrítið að hann jafnaði sig aldrei á atvikinu.“ Í viðtalinu við Stefán Jónsson var líkt og Jóhann væri að lýsa skrámu eða minniháttar atviki. Virtist í engu hafa bugast yfir minningunni, sem engum hefði þótt mikið eftir slíka reynslu.
….
Tveir vinnumenn Sveins Sveinssonar í Ásum voru í verslunarferð út yfir Sand með vagnalest. Þeir fóru yfir Múlakvísl nokkrum mínútum fyrir hlaupið og höfðu ekki grænan grun um hvað gekk á, og í vændum var. Þar fyllti farveginn af vatni og aur, á augabragði nánast á hæla þeirra.


….

Sláturtíð stóð yfir líkt og dagsetningin í október segir til um. Fjárrekstrar voru því á Mýrdalssandi
hægri / vinstri þessir dægrin. Bílaflutningar ekki hafnir og féð því rekið til slátrunar í Vík.
Enn var forsjón guðanna - eða hvers sem réði, með í för. Það varð tunnuskortur í Víkinni gosdaginn mikla.
Án þeirra var engin slátrun. Allt saltað í tunnur. Aðrar heimildir segja að saltskortur hafi bjargað mannslífum, trúlega var það skortur á hvorttveggja. Frysting i stórum stíl ekki komin til sögunnar á þessum tíma. Boð voru því látin berast frá sláturhúsinu í Vík að ekkert væri hægt að reka þennan dag fé til slátrunar. Á meðal degi hefðu margir rekstrar og lestir verið á Sandinum. Til viðbótar fóru síðustu til baka austur sandinn til síns heima sólarhring fyrir hamfaradaginn mikla. Þeir sluppu því líka sem var hreint ótrúlegt happ fyrir marga.

….
Þá víkur sögunni aftur niður í Álftaver.
Bændur þaðan voru á afrétti gosdaginn mikla. Þeir voru dreifðir um austurhluta Mýrdalssands. Líkt og fleiri Skaftfellingar sluppu þeir með naumindum undan hlaupinu með féð heim. Rekstur aðeins klukkustund eða tveimur síðar fram sandinn - hefði að líkindum þýtt ógn og stórhættu.

 

Loks fann konan tunnu í fjörunni sem hentaði. Kom á hana böndum. „Gerir sila og hefur til klakks, en á móti hengir hún viðardrumb“ (til jafnvægis). En hún fór illa á klakk og seinlega gekk ferðalagið heim. Tosaðist samt áfram, en þá tók hún að heyra ógnvænlegan nið úr norðurátt. Fóru þá einnig að sjást mikil ský yfir Mýrdalsjökli austanverðum. Til viðbótar var vatn var orðið á vegi hennar þar sem hún átti síst von, og byrjaði að tefja för.
Leiðina til baka um sína heimaslóð - leist henni alls ekki á blikuna. Sveitungar hennar í Álftaveri, aðallega konur, yngra fólk, og börn – (aðrir voru við smölun eða að taka á móti safninu) höfðu hópast upp á hæstu hóla og hæðir í túnum. Konan varð satt að segja felmtri slegin og datt fyrrnefndur heimsendir helst í hug. Blessaði sig í bak og fyrir.
Hún heyrir hróp og köll , og fólkið skipaði ;
„Hentu frá þér bannsettri tunnunni og flýttu þér sem mest !“
Því hlýddi hún hinsvegar ekki. Tryppið, tunnan og hún sjálf- skyldu saman heim á þrjóskunni.

Er hún náði loks til fólksins voru henni sögð tíðindin. Katla var farin að gjósa. Hún sýndi lítil svipbrigði. Það var engu líkara en axlir hennar sigju slakar niður. Virtist sem smá feginleiki á ógnartíma.

 

„Nú já Katla. Ekki annað ! „

Heimildir,: Byggt á frásögn Þórarins Helgasonar og öðru efni.

 


Afneitun Putins fyrir heimamarkað.

Stjórnun byggð á samfelldri lygi og grimmd - er ansi mikið dæmd til hins verra með tíð og tíma. 

Hræsnisfullar samúðarkveðjur Putins er ákveðin hræðsla hans sjálfs við samlanda sína.  Og fylgjendur Prigósjín.  Almenning sem rússnesk stjórnvöld "matreiða" sinn sannleik oní alla daga.  Frjáls fjölmiðlun er löngu fyrir bí.

Greið leið hersveita Wagner til Moskvu á "uppreisnardegi" var grunsamleg. Bar vott um talsverða hollustu rússneska hersins við hann.  Öllum einstaklingum sem liðkuðu fyrir eða ruddu leið hersveitar "verktakanna"áleiðis til Moskvu  - mun Putin refsa eða láta drepa. 

Aftaka Prigósjíns og þeirra sem voru innanborðs - er liður í því.  Að sjálfsögðu er öðrum kennt um ódæðið og rússneskum almenningi seld sú lygi.  Ps, hvers vegna náðist þetta allt á mynd.? Svari hver fyrir sig. 

 


mbl.is Úrskurðaður látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Illir ráðamenn sjá um hvor aðra.

Lúkasjenkó skuldaði Putin greiða.  Svo einfalt var það.    

Fyrir stuttu - þegar skiljanlegur kurr og mótmæli almennings með vafasöm úrslit kosninga í Hvíta - Rússlandi ( Belarus) stigmögnuðust, þá greip Putin inní atburðarrás.    Hann var þá skíthræddur um stöðu sína líkt og Putin nú. 

Lúkasjenkó hefur því sett sig í samband og " leyst" þessa pattstöðu. ( Nú eða Putin - hver veit).    Þakklætisvottur fyrir nýju " sendinguna"- þ.e.  kjarnorkuvopnin.     Sem og greiðann þegar allt stefndi í bál og brand hjá honum sjálfum fyrir nokkrum misserum. 

( viðbót) Prigó­sjín er því á leið til Belarus.
Hvernig honum tekst að stjórna sínu 

"hernaðar - verktakafyrirtæki" Wagner  þaðan, á eftir að koma í ljós. 


mbl.is Yfirgefa Voronezh
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki formúlu sería

Þetta er ágætt að fá svona óvænta seríu frá Bretanum.   Tilbreyting í því.

Líkt og Orri Páll blaðamaður minnist á hefur þessi leikkona varla átt við annað en formúluseríur með laganna vörðum. Semsagt hefðbundið stöff.

"Skilur lítið eftir ". Er frasi oft notaður.  SKilur t.d. Barnaby mikið eftir í kolli sjónvarpsáhorfenda.    Leyf mér að giska uuuuuuuuu nei.

Þannig að.  Eðlilegt fólk, í eðlilegum samræðum. Vandræðalegar uppákomur.  Feimni.  Lítið að segja.  Lítið að frétta.   

Hví ekki.   Er það ekki eitthvað sem flestir kannast við.


mbl.is Snilld eða bara bull?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breyta markmiðum Seðlabanka?

Ég finn fyrir vaxtahækkunum likt og flestir ( ekki allir) landsmenn. 
Á jafnvel til að hábölva vaxtastigi. 

Það er einn þjóðhöfðingi sem er á nákvæmlega sömu línu og verkalýðs sem og stjórnarandstaða hérlendis.    Hann heitir Erdogan og er forseti Tyrklands.  Tekur ekkert mark  á fræðunum og hagtölum.  

Afleiðingin er sú að verðbólga æðir upp hjá Tyrkjum - og er enn hærri en hér.

Það má gagnrýna Seðlabankastjórann, en hann er einungis að sinna sinu starfi. 

Viljum við hætta með verðbólgumarkmið? Það er val.   Trúlega lítt bættari þannig.  En allt í lagi fyrir gagnrýnendur að vera þá málefnalegir  með það.

 


mbl.is Ásgeir Jónsson: Var ekki að vísa í tveggja manna tal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rússar verða að semja.

Þjóð sem á massa af kjarnorkuvopnum gefst aldrei upp í stríði.  Subbulegheit Rússa og óvirðing fyrir mannslífum saklausra borgara er hinsvegar að verða einkenni þeirra.  Tilviljanakenndar eldflaugaárásir á fjölbýlishús og ibúðahverfi ásamt fleiru er heiftarleg skekkja þegar þeir fara halloka og hörfa víða á vígvellinum. 

Þetta stríð mun ekki fjara út og annar aðilinn gefast upp. Það er ekki þess eðlis.    Það verður að semja um frið á einhverjum tímapunkti Sama hversu hart, illt eða mikið óbragð mun verða í munni beggja viðsemjenda.

Þetta verður þó alltaf sneypuför Rússa.  Flestir sjá það, mema Putin sjálfur.


mbl.is Kínversk sendinefnd til Úkraínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Inngöngu leið á ólæstan sima

Eitt sérkennileg finnst mér.   Í sumum tilvikum poppar upp aðgönguleið í gemsann - þó hann sé læstur.  Auðveld leið væri að girða enn eina hindrun í viðbót fyrir hugsanlegan " hakkara" -- með því að skilaboð komi ekki yfir læsingu símana,


mbl.is Svindlarar reyna að komast yfir rafræn skilríki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband