Fjallið Þríhyrningur.

Keyrðum fyrir stuttu inní svokallaða Vallarkrók.  Keyrt í gegnum Hvolsvöll, áleiðis í Fljótshlíðina en beygt fyrstu beygju til vinstri.

Myndin er tekin af þjóðveginum, norðaustur af bænum Þinghól.
Ég hef þá kenningu að á þessum slóðum hafi sá/sú sem gaf fjallinu nafnið Þríhyrningur verið staddur / stödd. Á stuttum spotta glittir svona í topp fjallsins. Sem stendur undir nafni, þarna frá séð. Enn líklegar hefur viðkomandi verið stödd /staddur uppá ásunum og séð fimagejallið betur.
Að því sögðu blanda ég Árnesingurinn mér alls ekki inn í hvaðan fjallið er fegurst á að líta. Það er líklega álíka umdeilanlegt og Ingólfsfjallið (lögun þess) séð frá mismunandi stöðum hér í Flóanum :-)



Vendipunktur.

Þessi hækkun kann að verða vendipunktur fyrir íslenskt efnahagslíf nú í bili, sem og víðar um heim.

Olíuframleiðsluþjóðir fagna eftir mögur ár.

En hér fer að líkindum verðbólga af stað.  Hvað þýðir það?   Jú lánin okkar hækka.  Hafið þið heyrt þetta áður?

Annað stórt getur spilað inn í, sem hefur lika afleiðingar fyrir efnahagslífið íslenska.  Ein af stærstu lykilástæðum aukins fjölda erlendra ferðamanna hingað eru lág flugfargjalda- tilboð hingað.     Og hvað gerir það mögulegt?  Jú, stórlækkað verð á þotueldsneyti.

Varðand þetta siðast-talda gæti það breyst.    Myndi trúlega slá hressilega á fjölda og aukningu síðustu ára.

Allt eru þetta vangaveltur, en offramboð olíuvara síðustu árin og lækkun olíuverðs hefur haft mikil áhrif til að flýta bata efnahagslifs hérlendis.     Sem og haldið á lífi efnahag margra evruríkja og lafandi, í annars samfelldri stöðnun síðustu árin.

Þetta gerist þó ekki strax, og fer annars eftir "samstöðu" olíuframleiðenda.


mbl.is Veruleg hækkun á olíuverði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband